Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Þjálfarastyrkir ÍSÍ
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Ríó 2016 - Íslenskir keppendur í Ríó
Síðastliðna daga hefur verið stíf dagskrá hjá íslensku keppendunum á Paralympics í Ríó. Þann 9. september keppti Helgi Sveinsson í flokki F42-44 í spjótkasti. Daginn eftir, þann 10. september, kepptu sundkonan Thelma Björg Björnsdóttir og bogfimimaðurinn Þorsteinn Halldórsson.Ríó 2016 - Helgi Sveinsson keppir í kvöld
Setningarhátíð Paralympics 2016 fór fram í Ríó í Brasilíu í fyrrakvöld á Maracana-leikvanginum. Jón Margeir Sverrisson var fánaberi Íslands og sérstakur gestur Íþróttasambands fatlaðra við innmarseringuna var varaforseti ÍSÍ, Helga Steinunn Guðmundsdóttir. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var viðstaddur setningarhátíðina og í gær heimsótti hann Paralympic-þorpið og heilsaði upp á íslenska keppnishópinn.
Setningarhátíð Göngum í skólann
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands ásamt samstarfsaðilum setti Göngum í skólann í 10. sinn í morgun. Í þetta sinn fór setningarhátíðin fram í Akurskóla í Reykjanesbæ. Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla byrjaði á því að bjóða nemendur og gesti velkomna. Nemendur sungu skólasönginn fyrir gesti. Sigríður Inga Viggósdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ávarpaði nemendur og hvatti þá til þess að ganga eða nýta sér virkan ferðamáta og huga að umferðaröryggi. Jóhanna Ruth sem vann Ísland got talent söng tvö lög fyrir gesti. Að lokum tók Þórólfur Árnason til máls og hvatti nemendur til þess að taka þátt í verkefninu og sýna varkárni í umferðinni. Þórólfur stóðst svo ekki mátið og skellti í víkingaklappið fræga áður en hann setti verkefnið fyrir hönd samstarfsaðila verkefnisins. Verkefnið var svo sett með viðeigandi hætti þegar aðstandendur verkefnisins, nemendur, starfsfólk og gestir settu Göngum í skólann með því að ganga lítinn hring í nærumhverfi skólans.
Göngum í skólann sett í dag
Ríó 2016 - Paralympics hefst á morgun
Paralympics (Ólympíumót fatlaðra) hefst á morgun í Ríó í Brasilíu og stendur til 18. september. Fimm keppendur úr röðum fatlaðra keppa á leikunum. Hópinn skipa Jón Margeir Sverrisson sundmaður, Sonja Sigurðardóttir sundkona, Thelma Björg Björnsdóttir sundkona, Helgi Sveinsson spjótkastari og Þorsteinn Halldórsson bogfimimaður.Samfélagsmiðlar ÍSÍ
Haustfjarnám í þjálfaramenntun
Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands mun hefjast mánudaginn 26. september nk. Námið stendur yfir í átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi.
Norræna skólahlaupið sett í dag
Nýr starfsmaður ÍSÍ
ÍSÍ hefur ráðið Elías Atlason til starfa, en hann mun taka við af Óskari Erni Guðbrandssyni. Elías mun sjá um Felix skráningakerfi ÍSÍ og UMFÍ auk þess að halda utan um tölvumálefni ÍSÍ og Íþróttamiðstöðvarinnar. ÍSÍ býður Elías hjartanlega velkominn til starfa. ÍSÍ þakkar Óskari fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi, en hann mun sjá um fjölmiðla- og markaðsmál hjá KSÍ.Golfmót SÍÓ
Samtök íslenskra ólympíufara stóðu fyrir golfmóti þann 23. júní sl. en fengu aðstoð frá Golfsambandi Íslands og Nesklúbbinum við framkvæmd. Góð þátttaka var á mótinu. Lið badmintonmanna vann mótið í ár