Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Forvarnir

Fjölmargar íslenskar rannsóknir hafa sýnt að þátttaka unglinga í skipulögðu íþróttastarfi dregur úr líkum á að unglingar leiðist út í frávikshegðun. Þeir unglingar sem leggja reglulega stund á íþróttir eða aðra hreyfingu eru síður líklegir til að sýna neikvætt atferli en aðrir jafnaldrar þeirra. Íþróttastarf, líkt og annað skipulagt tómstundastarf í umsjón ábyrgra aðila, er þannig af mörgum talið hafa víðtækt forvarnargildi ekki einungis gegn frávikshegðun, líkt og afbrotum, ofbeldi og vímuefnaneyslu, heldur tengist aukin íþróttaþátttaka einnig betri námsárangri, betri líðan, meiri sjálfsvirðingu og jákvæðari líkamsmynd. 

Neysla áfengis, tóbaks eða fíkniefna á aldrei samleið með iðkun íþrótta og vill íþróttahreyfingin á Íslandi efla forvarnahlutverk sitt á eftirfarandi hátt:

  • Setja fram markvissa stefnu.
  • Stuðla að aukinni og almennari þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi.
  • Auka þekkingu á skaðsemi fíkniefna og forvörnum innan hreyfingarinnar.