Ríó 2016 - Helgi Sveinsson keppir í kvöld
Setningarhátíð Paralympics 2016 fór fram í Ríó í Brasilíu í fyrrakvöld á Maracana-leikvanginum. Jón Margeir Sverrisson var fánaberi Íslands og sérstakur gestur Íþróttasambands fatlaðra við innmarseringuna var varaforseti ÍSÍ, Helga Steinunn Guðmundsdóttir. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var viðstaddur setningarhátíðina og í gær heimsótti hann Paralympic-þorpið og heilsaði upp á íslenska keppnishópinn.
Í gær hófst sjálf keppnin á Paralympics og seinnipartinn í dag verður Helgi Sveinsson fyrstur Íslendinga til þess að láta að sér kveða í Ríó þegar hann mætir til keppni í spjótkasti í flokki 42-44. Helgi þykir sigurstranglegur enda fyrrverandi heimsmeistari í flokki aflimaðra, núverandi Evrópumeistari og heimsmethafi. Hægt verður að fylgjast með Helga í beinni útsendingu í kvöld á RÚV 2. Útsending hefst klukkan 20:45.
Hér má sjá keppnisdagskrá Íslands í Ríó.