Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Hreinn árangur - enginn afsláttur
Hrein líkamsrækt er ein sterkasta forvörnin gegn alls kyns sjúkdómum og heilsuvá, líkamlegum og andlegum. Það er ekki hægt að stytta sér leið að hreinum árangri, það er einfaldlega enginn afsláttur af því. Að nota ólögleg frammistöðubætandi efni og lyf stríðir gegn öllu því sem íþróttir og líkams- og heilsurækt standa fyrir.
Fyrirlestur á Akureyri um næringarfræði
Í dag, þann 23. maí, kl. 17:30, mun Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur halda fyrirlestur um næringu og árangur í íþróttum í stóra sal Háskólans á Akureyri. Fyrirlesturinn er í boði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Íþróttabandalags Akureyrar, Ungmennasambands Eyjafjarðar, Háskólans á Akureyri og íþróttadeildar Akureyrarbæjar og er hann ókeypis fyrir þátttakendur.
Vertu með - Minnum á fundinn í dag
Í dag, fimmtudaginn 23. maí, standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir opnum viðburði um hvernig hægt er að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Viðburðurinn fer fram kl. 15:30 – 16:45 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, í E-sal.
Þórarinn sæmdur Silfurmerki ÍSÍ
Ársþing Ungmenna- og Íþróttasambands Fjallabyggðar (UÍF) var haldið að Hóli í Siglufirði þriðjudaginn 21. maí síðastliðinn. Góð mæting var á þingið, alls voru 27 þingfulltrúar mættir af 34 mögulegum. Þingforseti var Sigurpáll Gunnarsson og stýrði hann þinginu af röggsemi. Þórarinn Hannesson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu og var Jónína Björnsdóttir kosin formaður í hans stað. Tillaga um breytingar á reglugerð um Verkefnasjóð UÍF var samþykkt á þinginu eftir talsverðar umræður. ÍSÍ veitti Þórarni Hannessyni fráfarandi formanni Silfurmerki ÍSÍ á þinginu en Þórarinn hefur auk formannsembættisins undanfarin ár verið mjög virkur í íþróttastarfinu innan UÍF og aðildarfélaga þess til fjölda ára. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.Allur hópurinn sem fer til Svartfjallalands
Viltu verða þjálfari?
Sumarfjarnám 1. og 2. stigs Þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.
Tryggvi og Þröstur sæmdir Gullmerki ÍSÍ
6 dagar til Smáþjóðaleika
Í dag eru 6 dagar þar til Smáþjóðaleikarnir verða settir í Svartfjallalandi. Skemmtilegt er frá því að segja að í þetta sinn sendir ÍSÍ 60 kvenkyns keppendur til leiks og 60 karlkyns keppendur. Samtals eru íslenskir þátttakendur 185.
Næring og árangur í íþróttum
Þann 23. maí næstkomandi, kl. 17:30, mun Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur halda fyrirlestur um næringu og árangur í íþróttum í stóra sal Háskólans á Akureyri. Fyrirlesturinn er í boði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Íþróttabandalags Akureyrar, Ungmennasambands Eyjafjarðar, Háskólans á Akureyri og íþróttadeildar Akureyrarbæjar og er hann ókeypis fyrir þátttakendur.
Vika eftir af verkefninu Hjólað í vinnuna
Skráðir þátttakendur Hjólað í vinnuna eru nú 6091, sem er fjölgun um tæplega 1800 manns frá því árið 2018, og er mesta þátttaka frá því árið 2015 þegar 6824 voru skráðir til leiks.
Listhlaupadeild SR Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Listhlaupadeild Skautafélags Reykjavíkur fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á vorsýningu deildarinnar í Skautahöllinni í Laugardal sunnudaginn 19. maí sl. Það var Viðar Garðarsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og jafnframt formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti deildinni viðurkenninguna á miðju skautasvellinu að viðstöddu miklu fjölmenni. Á myndinni má sjá iðkendurna Kötlu Karítas Yngvadóttur og Brynjar Ólafsson halda á fána fyrirmyndarfélaga og standandi frá vinstri eru þau Elísabet Jenný Hjálmarsdóttir og Anna Gígja Kristjánsdóttir úr stjórn Listhlaupadeildarinnar og Viðar Garðarsson ÍSÍ.
Dominiqua í framkvæmdastjórn ÍSÍ
Á Íþróttaþingi ÍSÍ 3. – 4. maí síðastliðinn urðu þau tímamót að þingfulltrúar samþykktu að Íþróttamannanefnd ÍSÍ fengi fulltrúa í framkvæmdastjórn ÍSÍ.