Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Nýr bannlisti WADA 2017
Val á íþróttamanni ársins
Miðvikudaginn 2. nóvember munu ÍSÍ og samtök íþróttafréttamanna standa fyrir hádegisfundi í E-sal Íþróttamiðstövarinnar og hefst fundurinn kl.12. Á fundinum verður rætt um val á íþróttamanni ársins, á að halda óbreyttu fyrirkomulagi eða á að velja íþróttamann og íþróttakonu ársins?Norræn yfirlýsing um lyfjaeftirlit og konur í leiðtogastörfum í íþróttahreyfingunni
Norrænn fundur íþrótta- og ólympíusamtaka var haldinn í Helsinki dagana 23.-25. september sl. Fundinn sóttu af hálfu ÍSÍ Lárus L. Blöndal forseti, Gunnar Bragason gjaldkeri, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri, Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ. Á fundinum voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál er varða íþróttahreyfinguna, svo sem íþróttir og glæpi, innflytjendur og flóttafólk, afreksmiðstöðvar, stórir íþróttaviðburðir og konur í leiðtogastörfum í íþróttahreyfingunni svo eitthvað sé nefnt. Farið var yfir helstu verkefni hvers sambands fyrir sig og lagðar fram skýrslur um starfsemi sambandanna. Þessir samráðsfundir eru afar mikilvægir og gefa gott tækifæri til að skiptast á upplýsingum um málefni sem eru efst á baugi hverju sinni.
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar 25 ára
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar á 25 ára afmæli í ár, en fyrsta hátíðin var haldin í Brussel 1991 og hét þá Ólympíudagar æskunnar. Á 45. ársþingi Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) nú í október var þessum áfanga fagnað með yfirlitssýningu í höfuðstöðvum Íþrótta- og Ólympíusambandsins í Brussel ásamt því að íþróttafólkið Elena M. Zamolodchikova fimleikakona frá Rússlandi og Ilias Iliadis júdómaður frá Grikklandi voru heiðruð, en þau unnu bæði til gullverðlauna á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og á Ólympíuleikum. Um tuttugu íþróttamenn sem hafa unnið gullverðlaun á Ólympíuleikum kepptu í byrjun afreksíþróttaferils síns á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar.
Ársþing EOC í Minsk
Evrópuleikarnir í Minsk
Nýtt merki EOC
Nýtt og nútímalegt merki Evrópusambands ólympíunefnda (EOC) var kynnt á ársþingi samtakanna í Minsk í Hvíta-Rússlandi 20.-21. október sl. Helsti innblástur við hönnun merkisins er kominn úr mósaíkmynstri, listformi sem fléttast saman við sögu Evrópu og menningu. Merkið sem samanstendur af 50 mósaíkstykkjum sem raðað er í hringlaga form endurspeglar þær 50 þjóðir sem aðild eiga að samtökunum. Við afhjúpun merkisins í móttökukvöldverði ársþingsins var fulltrúi hverrar aðildarþjóðar fenginn til að leggja niður einn bút í stækkaða útgáfu af merkinu.
Fundur Evrópusambands Ólympíunefnda í Brussel
Nefnd Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) um Evrópumálefni hittist á dögunum á EU-skrifstofu samtakanna í Brussel. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ á sæti í nefndinni.
Fyrirmyndarþjálfari Noregs miðlaði reynslu sinni
Myndasíða ÍSÍ
Fróðleikur á netinu
Karakter á leið til landsins
Föstudaginn 21. október kl.12:00 – 13.00 fer fram hádegisfundur á vegum Sýnum karakter verkefnisins um þjálfun karakters í gegnum íþróttir. Sverre Mansaas Bleie, þaulreyndur yfirþjálfari í handknattleik hjá Randesund, ætlar að miðla af reynslu sinni á fundinum. Sverre, sem hefur meðal annars hlotið útnefninguna Fyrirmyndarþjálfari Noregs. Hann leggur ríka áherslu á andlega og félagslega þætti í sinni þjálfun og er þekktur fyrir að skapa jákvætt viðhorf til íþróttaiðkunar og virðingu utan sem innan vallar. Erindi Sverre heitir: „It’s through relationship, you make developments“.