Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
PyeongChang 2018 - Isak í 55. sæti í sprettgöngu
Í dag fór fram sprettganga karla á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang. Byrjað var á tímatöku sem er undankeppni fyrir úrslitin, en einungis 30 bestu komast í úrslitin. Isak Stianson Pedersen var eini íslenski keppandinn sem tók þátt. Ræsti hann út nr.71 af alls 80 keppendum en ræst er út eftir stöðu á heimslistanum. Isak átti frábæra göngu, en hann kom í mark á 3:24,57 mínútum og endaði í 55. sæti. Hann fær 102.03 FIS punkta. Eru þetta hans bestu FIS punktar á ferlinum í sprettgöngu, en á heimslista er hann með 165.71 FIS punkta og því um stóra bætingu að ræða.
Heimsókn frá Grænlandi
PyeongChang 2018 - Keppni frestað vegna veðurs
Keppni í stórsvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu fór ekki fram í nótt vegna veðurs. Freydís Halla Einarsdóttir átti að keppa kl. 1.15 að íslenskum tíma, í sinni fyrri ferð, en sú seinni átti að hefjast kl. 4.45. Nýr tími fyrir stórsvig kvenna er 15. febrúar.
PyeongChang 2018 – Snorri í 56. sæti í skiptigöngu
Keppni í 30km skiptigöngu fór fram í dag á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang. Snorri Einarsson keppti í greininni og var þar með fyrstur Íslendinga til að keppa á leikunum. Snorri var með rásnúmer 48 og byrjaði nokkuð vel, en snemma í keppninni varð hann í tvígang fyrir óhappi varðandi stafi, þar sem festing slitnaði í annað skiptið og stafur brotnaði í hitt skiptið. Það hafði mikil áhrif á gönguna hans og að lokum lauk hann keppni í 56. sæti.PyeongChang 2018 - Góðir gestir í Ólympíuþorpinu
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- menningar- og íþróttamálaráðherra, var viðstödd setningu Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang sem fram fór í gær og í dag skoðaði hún aðstæður á leikunum, hitti keppendur og heimsótti Ólympíuþorpið.PyeongChang 2018 - Vetrarólympíuleikarnir settir
Vetrarólympíuleikarnir í Pyeongchang í Suður-Kóreu voru settir við hátíðlega athöfn klukkan 20 að staðartíma eða klukkan 11 að íslenskum tíma í morgun. Leikarnir standa yfir næstu 16 daga.PyeongChang 2018 - Undirbúningur á fullu
Hluti af íslenska hópnum sem tekur þátt í Vetrarólympíuleikunum mætti til Suður-Kóreu seint laugardaginn 3. febrúar eftir rúmlega 30 klst ferðalag. Þátttakendur tóku því rólega fyrsta daginn en eftir það fóru æfingar á fullt. Æfingarnar hafa gengið virkilega vel en aðstæður eru eins og þær gerast bestar. Mikið frost var fyrstu dagana, eða um 15-20 gráðu frost. Í dag fór setningarathöfn leikanna fram og þá var hitinn rétt við frostmark sem gerði útiveruna þægilegri fyrir hópinn.
Lífshlaupið - Góðlátlegur grannaslagur á Austurlandi
Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu var ræst 31. janúar sl. Vinnustaðakeppnin stendur frá 31. janúar - 20. febrúar og grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 31. janúar - 13. febrúar. Einstaklingskeppni stendur yfir allt árið.
Vorfjarnám 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ
Vorfjarnám 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 26. feb. nk. og tekur það fimm vikur. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það er sjálfstætt framhald náms á 2. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms. Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið föstudaginn 23. feb. Þátttökugjald er kr. 40.000.- Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa 2. stigi alm. hluta eða sambærilegu námi. Einnig þurfa þátttakendur að hafa 12 mánaða starfsreynslu sem þjálfarar og að hafa gilt skyndihjálparnámskeið. Möguleiki er að taka skyndihjálparnámskeiðið á meðan á námi stendur og fá fyrri þjálfunarreynslu metna.
Síðasti skráningardagur í þjálfaramenntun á morgun
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.
PyeongChang 2018 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu
Í dag var íslenski hópurinn boðinn velkominn í Ólympíuþorpið í PyeongChang. Sérstakar móttökuhátíðir eru haldnar dagana fram að setningarhátíð og var slík hátíð í dag þar sem þátttakendur frá Gana, Liechtenstein, Íslandi, Ekvador og Kosóvó voru boðnir velkomnir.PyeongChang 2018 - Freydís Halla fánaberi Íslands
Freydís Halla Einarsdóttir, keppandi í alpagreinum, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð XXIII Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang 2018. Setningarhátíðin fer fram að kvöldi 9. febrúar kl. 20:00 að staðartíma (kl.11:00 á ísl.tíma) og verður hún sýnd í beinni útsendingu á RÚV.