Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Íþróttafólk Hafnarfjarðar
Föstudaginn 27. desember 2019 fór fram árleg Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Anton Sveinn Mckee sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar var kjörinn Íþróttakarl Hafnarfjarðar og Þórdís Eva Steinsdóttir frjálsíþróttakona úr Fimleikafélagi Hafnarfjarðar var kjörin Íþróttakona Hafnarfjarðar.
Lífshlaupið 2020 - Hefst 5. febrúar
Nú styttist í að nýtt lífshlaupsár hefjist, þann 5. febrúar. Opnað verður fyrir skráningu þann 22. janúar á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.
Jakob Íþróttamaður Akraness 2019
Jakob Svavar Sigurðsson knapi var kjörinn Íþróttamaður Akraness í annað sinn þann 6. janúar sl. Jakob Svavar hefur um langt árabil verið einn af bestu íþróttaknöpum á landinu og unnið marga Íslandsmeistaratitla auk heimsmeistaratitils. Hann hefur einnig hlotið mörg verðlaun fyrir góða reiðmennsku og prúðmennsku. Jakob Svavar er í landsliðshóp Landssambands Hestamanna, en hann skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis. Hann er efstur á heimslista (World Ranking) FEIF (alþjóðasamtök íslenska hestsins) í tölti. Á árinu 2019 sigraði Jakob m.a. í einstaklingskeppni meistaradeildarinnar í hestaíþróttum með því að verða í fyrsta sæti í fimmgang, fyrsta sæti í tölti, fyrsta sæti í slaktaumatölti og í þriðja sæti í fjórgang.
Ársþing ÍBV - Hjördís áfram formaður
Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fór fram í Týsheimilinu 6. janúar síðastliðinn. Um var að ræða ársþing ársins 2019 sem ekki náðist að halda á tilskildum tíma. Þingið gekk vel og mæting var góð.
Nemendur úr HÍ í heimsókn
Íþróttafræðinemar úr Háskóla Íslands heimsóttu ÍSÍ í dag, en þau eru öll á 3. og síðasta ári í BS námi sínu og voru í áfanganum Íþróttir og samfélag. Kennari þeirra er Ágústa Edda Björnsdóttir afrekskona í hjólreiðum. Nemarnir fengu kynningu á starfsemi og uppbyggingu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, en einnig innsýn inn í Ólympíuhreyfinguna. Nemendur voru áhugasamir og duglegir að taka þátt í umræðum. Lausanne 2020 - keppni í fyrri hluta lokið hjá okkar fólki
Í dag luku íslensku keppendurnir í alpagreinum þátttöku á Ólympíuleikum ungmenna í Lausanne þegar þeir tóku þátt í svigkeppni leikanna. Íþróttamaður Borgarfjarðar 2020
Námskeið í stjórnendaþjálfun haldið hjá ÍSÍ
Dagana 8.-10. janúar stóð ÍSÍ fyrir stjórnendanámskeiði sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið sátu 32 einstaklingar sem vinna í íþróttahreyfingunni og var námskeiðið fullt. Gunnar Jónatansson stjórnendamarkþjálfi var aðalkennari á námskeiðinu, en aðrir kennarar voru þeir Birkir Smári Guðmundsson lögfræðingur ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ sem jafnframt var námskeiðsstjóri. Skipulag námskeiðsins var í höndum starfsmanna Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.Lausanne 2020 - stórsvig pilta
Í dag fór fram keppni í stórsvigi pilta. Gauti Guðmundsson endaði í 29. sætiUndirritun samstarfssamnings um samskiptaráðgjafa
Samstarfssamningur mennta- og menningarmálaráðuneytis og Domus Mentis - Geðheilsustöðvar um hlutverk samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs var undirritaður í ráðuneytinu í dag.
Ný lög um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs byggja á tillögum starfshóps mennta- og menningarmálaráðherra um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Ísak Óli Íþróttamaður Skagafjarðar
Frjálsíþróttakappinn Ísak Óli Traustason var útnefndur Íþróttamaður Skagafjarðar 27. desember sl. við hátíðlega athöfn í Ljósheimum. Auk þess var hann útnefndur frjálsíþróttamaður Skagafjarðar við sama tækifæri. Meistaraflokkur kvenna hjá Knattspyrnudeild Tindastóls varð lið ársins og Sigurður Arnar Björnsson þjálfari Frjálsíþróttadeildar Tindastóls þjálfari ársins.
Síðasti skiladagur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélaga
Frestur til að skila inn umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga rennur út á miðnætti í kvöld, 13. janúar 2020.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki úr sjóðnum vegna ferða á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót innanlands á árinu 2019.