Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Fyrri umferð í svigi kenna lokið
Að lokinni fyrri ferðinni í svigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi þá er Helga María Vilhjálmsdóttir í 43. sæti og Erla Ásgeirsdóttir í 45. sæti. Helga María kom í mark á tímanum 1:02,69 mínútum og var rétt rúmum tíu sekúndum frá Mikaelu Shiffrin sem er efst eftir fyrri ferðina en Erla kom í mark á tímanum 1:03,55 mínútum. Svig í Sochi
Í dag keppa Erla Ásgeirsdóttir og Helga María Vilhjálmsdóttir í svigi kvenna. Fyrri ferðin hefst kl. 12:45 og seinni ferðin kl. 16:15 að íslenskum tíma. Keppni lokið í stórsvigi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Fyrri umferð stórsvigs karla lokið í Sochi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa lokið fyrri ferð í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í dag. Einar Kristinn er í 63. sæti og Brynjar Jökull í 65. sæti en seinni ferðin hefst um kl. 10:30. Íþróttaleiðtogar hittast í Sochi
Á Vetrarólympíuleikunum í Sochi eru samankomnir allir helstu forsvarsmenn íþrótta- og ólympíuhreyfingarinnar á heimsvísu.
Dvöl þeirra á leikunum er meðal annars notuð til þess að funda, mynda og styrkja tengslanet og ræða ýmis hagsmunamál hreyfingarinnar.
Lúðvík Georgsson heiðraður á ársþingi KSÍ
Á ársþingi KSÍ í Hofi á Akureyri um síðastliðna helgi var Lúðvík Georgsson sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir frábær störf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Það var Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ, sem sæmdi Lúðvík krossinum.Met þátttaka í Lífshlaupinu
Fréttir af ársþingi KSÍ
Ársþing Knattspyrnusambands Íslands var haldið í Hofi á Akureyri 15. febrúar sl. Kosið var um fjögur sæti í aðalstjórn KSÍ og hlutu kosningu þau Gísli Gíslason Akranesi, Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum, Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík og Rúnar Arnarson Reykjanesbæ. Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja var haldið í aðstöðu Knattspyrnufélagsins Víðis í Garðinum þann 17. febrúar 2014. Þingið var vel sótt af sambandsaðilum og stjórnað örugglega af þeim Gunnari Jóhannssyni, formanni, og Halldóri Smárasyni.Keppni í stórsvigi kvenna lokið
Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir hafa nýlokið keppni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Helga María lenti í 46. sæti og Erla í 52. sæti. Helga María, sem var í 51. sæti eftir fyrri ferðina, fór seinni ferðina á 1:25,52 mínútu og var samtals á 2:51,91 mínútum.Seinni umferð í stórsvigi kvenna hefst kl. 09:00
Nú kl. 09:00 hefst seinni umferð í stórsvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi en þar keppa Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir. Helga María er í 51. sæti og Erla í 57. sæti eftir fyrri umferðina sem fram fór snemma í morgun. Besta tímanum í fyrri umferðinn náði Tina Maze frá Slóveníu en hún hefur þegar unnið til gullverðlauna í bruni á leikunum.