Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
28

27.04.2020

Vertu sterkur hlekkur í keðjunni

Vertu sterkur hlekkur í keðjunniSmáforritið Rakning C-19 er mikilvægur hlekkur í því viðamikla starfi sem er í gangi vegna Covid-19. Smáforritið hjálpar til við að greina ferðir einstaklinga síðustu 14 daga og rekja saman við ferðir annarra þegar upp kemur smit eða grunur um smit. Því fleiri sem sækja smáforritið, því betri og skilvirkari eru upplýsingarnar sem hægt er að vinna úr því. Smáforritið er bæði fyrir Android og iOS tæki og er opið öllum.
Nánar ...
24.04.2020

Æfingabingó og ratleikir hjá Þrótti

Æfingabingó og ratleikir hjá ÞróttiKnattspyrnudeild Þróttar hefur tekist vel til að koma æfingum til iðkenda sinna á meðan að skipulagðar æfingar falla niður. Til þess að halda sambandi við iðkendur nýtir Þróttur sér You-tube rás félagsins. Þar má sjá æfingamyndbönd fyrir iðkendur og alla sem vilja æfa sig heima. Fyrsta myndbandið sem sett var inn sýnir leikmenn úr meistaraflokki kvenna, Þórkötlu Maríu Hallsdóttur og Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur, framkvæma þrjár útfærslur af heimsfrægum snúningum fótboltakappans Zinedine Zidane. Fleiri myndbönd má finna á síðunni, t.d. leiðbeiningar um hvernig fótboltagolf fer fram, gabbhreyfingar af gamla skólanum, hvernig taka á boltann af jörðinni og markmannsæfingar.
Nánar ...
21.04.2020

Íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maí

Íþróttastarf barna og ungmenna eftir 4. maíÍ dag, 21. apríl, birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum tekur gildi 4. maí 2020 kl. 00.00 og gildir til 1. júní 2020 kl. 23.59. Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar. Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.
Nánar ...
20.04.2020

Opnunartími ÍSÍ

Opnunartími ÍSÍSkrifstofa ÍSÍ verður opin frá 10-14 alla virka daga í þessari viku, en lokað verður á fimmtudaginn á sumardaginn fyrsta.
Nánar ...
20.04.2020

Hjólað í vinnuna hefst 6. maí

Hjólað í vinnuna hefst 6. maíVerkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 6. - 26. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar á vefsíðu Hjólað í vinnuna 22. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 26. maí.
Nánar ...
19.04.2020

Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ

Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍFjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
17.04.2020

Þrautakeppnir KKÍ

Þrautakeppnir KKÍKörfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur sett í gang stuttar þrautakeppnir með körfubolta sem allir áhugasamir geta tekið þátt í heima. Fjórar keppnir eru á döfinni
Nánar ...
17.04.2020

Innblástur frá Ólympíuförum

Innblástur frá ÓlympíuförumÁ vefsíðu Ólympíustöðvarinnar, Olympic Channel, má sjá æfingar sem framkvæma má heima fyrir. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir fólk sem vill prófa að æfa eins og Ólympíufarar æfa á tímum samkomubanns. Finna má æfingar fyrir allan líkamann eða einstaka líkamsparta, eins og kviðæfingar, lyftingaræfingar fyrir fætur o.fl. á vefsíðunni. Afreksíþróttafólkið sem deilir æfingunum kemur úr hinum ýmsu íþróttagreinum; skautum, karate, boxi, frjálsíþróttum og sundi.
Nánar ...
17.04.2020

Fimleikadeild Gróttu með heimaæfingar

Fimleikadeild Gróttu með heimaæfingarHefðbundið íþróttastarf hjá Gróttu lagðist niður þann 16. mars sl. Síðan þá hafa þjálfarar í Gróttu reynt að sinna þörfum iðkenda eftir bestu getu með því að útbúa heimaæfingar og deila þeim í gegnum rafræna miðla.
Nánar ...
15.04.2020

Íþróttastarf leyfilegt með takmörkunum 4. maí

Íþróttastarf leyfilegt með takmörkunum 4. maíForsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í gær næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum, skólahaldi og skipulögðu íþróttastarfi. Breytingarnar taka gildi 4. maí.
Nánar ...
15.04.2020

Við berjumst fyrir draumnum

Við berjumst fyrir draumnumÁætlanir margra hafa breyst eftir að ljóst var að Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 yrði frestað um eitt ár, en leikarnir munu fara fram frá 23. júlí til 8. ágúst 2021. Einn íslenskur badmintonspilari stefndi á þátttöku á Ólympíuleikunum, Kári Gunnarsson en hann er áttfaldur Íslandsmeistari í einliðaleik karla. Kári hafði ekki unnið sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Tókýó þegar að ákvörðun var tekin um að fresta leikunum, en lokalisti yfir þátttakendur hefði undir venjulegum kringumstæðum verið birtur þann 1. maí nk. Kári hefur sl. þrjú ár keppt á alþjóðlegum mótum um heim allan til þess að koma sér upp heimslistann og fá keppnisrétt á Ólympíuleikunum. Hann hefur nú þurft að endurskipuleggja áætlanir sínar og stefnir á Ólympíuleikana 2021.
Nánar ...