Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Skíðaþing SKÍ - Nýr formaður
Skíðaþing Skíðasambands Íslands (SKÍ) fór fram í Ólafsfirði þann 25. maí sl. Þingið hófst með þingsetningu og í kjölfarið var skýrsla stjórnar og ársreikningar síðustu tveggja ára kynntir, þingskjöl voru kynnt og útdeilt til nefnda. Nefndarstörf fóru fram og voru þingskjöl síðan tekin til atkvæðagreiðslu sem og að kosningar fóru fram. Þrír stjórnarnmenn gengu úr stjórn, þeir Einar Þór Bjarnason (formaður), Ögmundur Knútsson (varaformaður) og Kristján Hauksson (ritari). Allir hafa þeir starfað innan sambandsins í stjórn og nefndum í mörg ár. Bjarni Theódór Bjarnason er nýr formaður SKÍ en hann var sjálfkjörinn þar sem engin önnur framboð bárust. Engin kosning var í fagnefndir þar sem ný lög voru samþykkt á þinginu sem kveða á um að stjórn tilnefni í nefndirnar.
Ekki harka af þér höfuðhögg!
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ - 15. júní
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram 15. júní 2019. Hlaupið verður á yfir 80 stöðum á landinu en þetta er í þrítugasta skiptið sem Kvennahlaupið er haldið. Hlaupastaði 2019 má sjá hér á vefsíðu Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ.
Smáþjóðaleikunum 2019 slitið
Keppni á Smáþjóðaleikunum 2019 í Svartfjallalandi lauk í dag. Lokahátíðin fór fram í leikaþorpinu í kvöld og Anton Sveinn Mckee, sundmaður, var fánaberi fyrir hönd Íslands. Hátíðin hófst á því að íþróttafólk í blaki og körfuknattleik fékk sín verðlaun afhend. Íslenska íþróttafólkið var glæsilegt á sviðinu í verðlaunaafhendingunni. Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og forseti Evrópusambands Ólympíunefnda voru viðstaddir lokaathöfnina ásamt háttsettum gestum frá Svartfjallalandi. Leikunum var slitið með kraftmikilli flugeldasýningu.
Ísland í 3. sæti verðlaunatöflunnar
Ísland hafnaði í 3. sæti á verðlaunatöflu Smáþjóðaleikanna 2019 með 54 verðlaun, þar af 19 gullverðlaun. Lúxemborg trónir á toppi töflunnar með 76 verðlaun, þarf af 26 gull. Kýpur var í 2. sæti með 64 verðlaun. Mónakó var í 4. sæti með 47 verðlaun.
Anton Sveinn fánaberi íslenska hópsins
Lokahátíð Smáþjóðaleikanna 2019 hefst kl. 22.00 í kvöld (kl.20 ísl.) og stendur í um hálftíma. Fánaberi íslenska hópsins verður sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Anton vann til fernra gullverðlauna á leikunum, sem er glæsilegur árangur. Hann vann 50 metra, 100 metra og 200 metra bringusund.Forseti IOC á Smáþjóðaleikum
Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), Thomas Bach, heimsótti leikaþorp Smáþjóðaleikanna í dag í fylgd Dusan Simonovic, forseta Ólympíunefndar Svartfjallalands og Igor Vusurovic, framkvæmdastjóra leikanna 2019. Landslið karla í blaki hefur lokið leik
Karlalandsliðið í blaki spilaði sinn síðasta leik í dag á móti Kýpur á Smáþjóðaleikunum. Íslenska liðið hafði ekki unnið leik á mótinu fyrir leikinn, en tekið eina hrinu í þeim öllum.
Stund milli stríða
Kvennalandsliðið í blaki hefur staðið sig vel á Smáþjóðaleikunum 2019, en þær tryggðu sér þriðja sætið á leikunum í morgun. Á bak við tjöldin eru m.a. Berglind Valdimarsdóttir liðsstjóri og Mundína Ásdís Kristinsdóttir sjúkraþjálfari kvennalandsliðsins í blaki, en þær hafa fylgt hópnum á þessum leikum.
Landslið karla í körfu með brons
Lokaleikur íslenska körfuknattleikslandsliðs karla fór fram í morgun. Liðið sigraði Kýpur 86:53 og náði þar með 3. sæti á Smáþjóðaleikunum 2019. Liðið hefur spilað vel á leikunum, sýnt góða liðsheild og hefur verið flott að fylgjast með þeim.
Bronsverðlaun hjá blaklandsliði kvenna
Kvennalandsliðið í blaki spilaði sinn síðasta leik á Smáþjóðaleikunum í dag við gestgjafana Svartfjallaland. Með sigri gátu Svartfellingar tryggt sér gull á leikunum. Með íslenskum sigri var möguleiki á silfri, en bronsið var tryggt fyrir leikinn.