Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Minsk 2019 - Badminton á Evrópuleikunum
Í kvöld keppti Kári Gunnarsson við Brice Leverdez frá Frakklandi, en hann var fyrirfram talinn sterkasti leikmaðurinn í riðli Kára og er ofarlega á heimslistanum, eða í 33. sæti og rúmlega 100 sætum ofar en Kári. Minsk 2019 - Tæpt tap hjá Kára
Kári Gunnarsson keppti í gærkvöldi við Christian Kirchmayr frá Sviss í einliðaleiki í badminton á Evrópuleikunum í Minsk.Vetrarólympíuleikarnir í Mílanó-Cortina 2026
Í gær tilkynnti Thomas Bach forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) á fundi IOC í Lausanne í Sviss að Mílanó-Cortina á Ítalíu yrði gestgjafi Vetrarólympíuleikanna 2026 og Vetrarólympíumóts fatlaðra 2026. Valið stóð á milli Mílanó-Cortina og Stokkhólms-Åre í Svíþjóð. Fyrr á fundinum höfðu fulltrúar frá báðum borgum verið með kynningu á sinni borg og markmiðum í tengslum við leikana. Ítalir sem voru viðstaddir fundinn fögnuðu vel þegar að ljóst var að leikarnir yrðu haldnir í Mílanó-Cortina.
Ný hlutverk stækka sjóndeildarhringinn
Smáþjóðaleikarnir fóru fram í Svartfjallalandi nýverið. Tæplega 190 manns fóru á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands á leikana að þessu sinni. Þórey Edda Elísdóttir, Ólympíufari í stangarstökki, og Ingi Þór Ágústsson, sundmaður sem margoft keppti á Smáþjóðaleikum, voru í hópi íslenskra þátttakenda á leikunum, en þau sitja bæði í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Aðspurð segir Þórey Edda það tvennt ólíkt að fara á Smáþjóðaleika sem keppandi eða sem stjórnarkona.
Opnun nýrra höfuðstöðva IOC
Í gær opnaði Alþjóðaólympíunefndin (IOC) nýjar höfuðstöðvar sínar, Ólympíuhúsið, í Lausanne í Sviss. Dagurinn í gær, 23. júní, var kjörinn til þess að opna dyrnar að nýjum höfuðstöðvum því Alþjóðaólympíunefndin átti 125 ára afmæli. Nefndin var stofnuð 23. júní árið 1894 af Pierre de Coubertin og er Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur af því tilefni þennan dag ár hvert. Athöfnin var fjölmenn en um 700 manns mættu. Viðstaddir voru m.a. 206 forsetar Ólympíunefnda, þeirra á meðal Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ var viðstödd ásamt framkvæmdastjórn EOC.
Ólympíustöðin sýnir frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar
Í dag kl.14:00 (kl.13:00 ísl.) mun Ólympíustöðin sýna frá fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) í Lausanne í Sviss í beinni útsendingu.Thomas Bach, forseti IOC mun tilkynna á fundinum hvaða borg það er sem verður gestgjafi Vetrarólympíuleikanna 2026, en sú athöfn fer fram kl.18:00. Borgirnar tvær sem keppast um að verða valdar sem gestgjafi leikanna eru Stokkhólmur-Åre í Svíþjóð og Mílanó-Cortina á Ítalíu. Á fundinum munu fulltrúar frá báðum borgum vera með erindi, en Ólympíustöðin mun einnig sýna myndefni sem unnið hefur verið um undirbúning borganna í tengslum við Vetrarólympíuleikana 2026 ásamt viðtölum við skipuleggjendur og fleiri sem koma að slíku verkefni.
Minsk 2019 - Verðlaunatafla
Minsk 2019 - Dagskrá
Í dag, mánudaginn 25. júní, hefst keppni í badminton þar sem Kári Gunnarsson keppir í einliðaleik. Agnes Suto-Tuuha og Valgarð Reinhardsson, keppendur í fimleikum, eru væntanlegir til Minsk í dag og hefja keppni á fimmtudag. Hákon Þór Svavarsson mun svo keppa í haglabyssuskotfimi miðvikudag og fimmtudag.
Minsk 2019 - Sveinbjörn tapaði fyrir silfurhafa
Sveinbjörn Jun Iura keppti í -81 kg. flokki í dag í júdókeppni Evrópuleikanna. Hann fékk yfirsetu í 64 manna úrslitum en í 32 manna úrslitum keppti hann á móti Ivaylo Ivanov frá Búlgaríu.
Minsk 2019 - Ásgeir keppti í loftbyssu
Keppni í 10m loftbyssu karla fór fram í dag og keppti Ásgeir Sigurgeirsson í undankeppninni í morgun.
Ólympíudagurinn fer fram í dag
Í dag, þann 23. júní, er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Minsk 2019 - Eowyn keppti í dag
Eowyn Marie Alburo Mamalias keppti í bogfimi í dag, en undankeppnin fór fram í gær og réði sú keppni hvaða mótherja hún fengi í útsláttarkeppninni. Eowyn lenti á móti Toja Ellison frá Slóveníu, en hún stóð sig best í undankeppninni í gær og er númer 12 á heimslistanum í greininni.