Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Hjólað í vinnuna 2. - 22. maí
María Júlía Jónsdóttir kjörin sambandsstjóri UMSB
96. sambandsþing UMSB var haldið miðvikudaginn 14. mars í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Á þinginu var kosið í nýja stjórn UMSB. Sólrún Halla sambandsstjóri gaf ekki kost á sér til endurkjörs en hún hefur verið í stjórn frá árinu 2013.Hjólað í háskólann 2018
Almenningsíþróttasvið ÍSÍ og umhverfis- og samgöngunefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands munu leiða saman reiðhesta sína að nýju í sameiginlegu hjólreiðaátaki nemenda HÍ dagana 9.-15. apríl 2018. Hin hefðbundna keppni Hjólað í vinnuna er ávallt haldin í byrjun maí á ári hverju en sá tími er venjulega mikill álagstími fyrir háskólanema vegna vorprófa og hafa þeir oft átt erfitt með að ná fullri þátttöku sökum þess. Opnað verður fyrir skráningu háskólanema í keppnina þann 6. apríl.
Sigurður Eiríksson nýr formaður UMSE
Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE) fór fram í félagsheimilinu Laugarborg í Eyjarfjarðarsveit 22. mars sl. Góð mæting var á þingið en 31 fulltrúi af 46 mættu til þings og áttu öll félög innan sambandsins fulltrúa.Málþing um forvarnir í lyfjamálum
Þann 5. apríl nk. fer fram málþing um forvarnir í lyfjamálum. Fredrik Lauritzen, forstöðumaður forvarna- og lýðheilsumála hjá Anti-Doping Norway mun fjalla um málefnið.
Samfélagsmiðlar ÍSÍ
Ólympíumeistari með skýr skilaboð til íþróttafólks og þjálfara
Dagana 23. – 25. mars fór fram á Húsavík athyglisvert námskeið, um þjálfun barna og unglinga og leiðina til árangurs í íþróttum. Það er óhætt að segja að skilaboðin voru skýr; langtímamarkmið, skemmtilegar æfingar við hæfi hvers og eins og keppnisferill sem miðaður er við 16 ára aldur.
Gunnar endurkjörinn formaður ÍS
Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja 2018 var haldið 22. mars sl. í Víðisheimilinu í Garði. Formaður ÍS, Gunnar Jóhannsson setti þingið og gengið var til formlegrar dagskrár. Þinggerð síðasta ársþings var lesin upp og samþykkt og að því loknu flutti formaður skýrslu stjórnar og gjaldkeri þess, Halldór E. Smárason reikningana, sem samþykktir voru einróma. Gunnar var endurkjörinn formaður til næsta starfsárs. Þingið sóttu 12 fulltrúar frá sex af níu aðildarfélögum ÍS og gerðu fulltrúar þessara félaga stuttlega grein fyrir starfi sinna félaga á síðasta starfsári. Sigríður Jónsdóttir sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ.
Fyrsta þríþrautarþing Þríþrautarsambands Íslands
Fyrsta þríþrautarþing Þríþrautarsambands Íslands var haldið þann 24. mars í húsnæði ÍSÍ. Hafsteinn Pálsson var þingforseti og Jón Oddur Guðmundsson þingritari.
Áhugaverð myndbönd á Ólympíustöðinni
Samningur ÍSÍ og Air Iceland Connect
ÍSÍ og Air Iceland Connect (AIC) hafa undirritað samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna. Samningurinn gildir til 15. desember 2018. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Grímur Gíslason forstöðumaður markaðs- og sölusviðs AIC undirrituðu samninginn formlega í gær í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardal.Opið fyrir starfsskýrsluskil
Búið er að opna fyrir skil á starfsskýrslum í Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Samkvæmt 8. grein laga ÍSÍ þá þurfa allir sambandsaðilar ÍSÍ að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert í gegnum Felix kerfið.