Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

08.06.2013

Kvennahlaupið er í dag

Kvennahlaupið er einn stærsti íþróttaviðburður ársins en hlaupið verður á 81 stað hérlendis og á 17 stöðum erlendis. Hátíðardagskrá verður á mörgum hlaupastöðum og víða verður frítt í sundlaugar fyrir þátttakendur að loknu hlaupi. Hlaupið verður kl. 11 á fjölmörgum stöðum t.d. í Mosfellsbæ og á Akureyri en fjölmennasta hlaupið er jafnan í Garðabæ
Nánar ...
07.06.2013

Kvennahlaupið á morgun

Á morgun, laugardaginn 8. Júní, fer hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram. Kvennahlaupið er einn stærsti íþróttaviðburður ársins en hlaupið verður á 81 stað hérlendis og á 17 stöðum erlendis. Hátíðardagskrá verður á mörgum hlaupastöðum og víða verður frítt í sundlaugar fyrir þátttakendur að loknu hlaupi. Hlaupið verður frá Mosfellsbæ og á Akureyri kl. 11. en fjölmennasta hlaupið er jafnan í Garðabæ e
Nánar ...
07.06.2013

Alltaf tekið þátt í Kvennahlaupinu

Alltaf tekið þátt í KvennahlaupinuIngibjörg Malen er níu ára en hún hefur tekið þátt í öllum Kvennahlaupum frá fæðingu. Fyrsta árið í kengúrupoka, síðan í kerru, og svo hlaupandi. Hún er að taka þátt í sínu 10. hlaupi í ár og ætlar hún að hlaupa með móður sinni á Reykhólum. Hefð hefur skapast hjá mæðgum, systrum, frænkum og vinkonum að mæta saman í hlaupið og hvetja hver aðra áfram. Konur geta kynnt sér nálæga hlaupastaði á vef Sjóvá www.sjova.is en þar má einnig finna upplýsingar um tímasetningar hlaupa, lengdir og skemmtidagskrá á hverjum stað fyrir sig.
Nánar ...
06.06.2013

Breytt fyrirkomulag tilkynninga um lyfjapróf

Vinnureglum lyfjaeftirlits um tilkynningar um lyfjapróf og niðurstöður þeirra hefur verið breytt. Eftirleiðis verður fyrirkomulagið þannig að tilkynnt er um lyfjapróf, hvar og hvenær þau fara fram - auk fjölda og kyn íþróttamanna er boðaðir eru í lyfjapróf - um leið og niðurstöður úr greiningu sýnanna liggja fyrir.
Nánar ...
05.06.2013

Anna Rún og Sigurðu Orri til Ólympíu

Anna Rún og Sigurðu Orri til ÓlympíuÁ hverju ári eru tveir einstaklingar valdir til þátttöku í námskeiði á vegum IOA (International Olympic Academy) í Ólympíu í Grikklandi. Að þessu sinni urðu þau Anna Rún Kristjánsdóttir og Sigurður Orri Hafþórsson fyrir valinu.
Nánar ...
05.06.2013

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍÖldrunarheimili út um allt land halda Kvennahlaup hjá sér á næstu dögum. Hjúkrunarheimilið Eir var með Kvennahlaupið í gær, þriðjudaginn 4. júní, þar sem um 140 konur og karlar á öllum aldri tóku þátt. Einnig verður hlaupið á eftirfarandi stöðum: Gerðubergi, Seljahlíð og Sóltúni miðvikudaginn 5. júní, Hrafnistu í Reykjavík, Boðaþing, Furugerði 1 og Skjól föstudaginn 7. Júní. Á Hrafnistu í Hafnarfirði 14. júní. Einnig verður Kvennahlaup haldið á Dalbraut Reykjavík, Ás í Hveragerði, Eirhömrum í Mosfellsbæ og á Höfða Akranesi.
Nánar ...
04.06.2013

Viðar áfram formaður ÍHÍ

Viðar áfram formaður ÍHÍÁrsþing Íshokkísambands Íslands var haldið sunnudaginn 26. maí sl. í fundarsölum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Fjörutíu og átta fulltrúar höfðu rétt til setu á þinginu en dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum sambandsins. Viðar Garðarsson var endurkjörinn formaður sambandsins en aðrir í stjórn eru Jón Þór Eyþórsson, Árni Geir Jónsson, Sigurður Sigurðsson, Björn Davíðsson
Nánar ...
04.06.2013

Nýr formaður Skíðasambands Íslands

Nýr formaður Skíðasambands ÍslandsÁrsþing Skíðasambands Íslands var haldið á Akureyri dagana 24. og 25. maí sl. og sóttu það 40 manns víðsvegar af landinu. Á þinginu voru samþykkt ný lög sem skýra eiga starf sambandsins enn betur. Páll Grétarsson gaf ekki kost á sér áfram í formannsembættið og var nýr formaður sambandsins kjörinn Einar Þór Bjarnason.
Nánar ...
04.06.2013

Hreyfum okkur saman

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 8. júní. Markmið Kvennahlaupsins er að hvetja konur til þess að hreyfa sig og stunda heilbrigt líferni. Slagorð Kvennahlaupsins í ár er „Hreyfum okkur saman“ í tilefni af samstarfi Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ við styrktarfélagið Göngum saman. Á hverju ári er valið eitt málefni tengt konum til þess að vekja athygli á og í ár var ákveðið að vera í samstarfi við styrktarfélagið Göngum saman sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini.
Nánar ...
04.06.2013

Þrjár íþróttagreinar keppa um þátttökurétt á ÓL 2020

Framkvæmdastjórn Alþjóðaólympíunefndarinnar samþykkti í síðustu viku hvaða íþróttagreinar verða í kjöri um viðbótargrein á Ólympíuleikunum árið 2020. Upphaflega voru átta íþróttagreinar sem komu til greina en hafnabolti/mjúkbolti, skvass og glíma (wrestling) komust í gegnum niðurskurð.
Nánar ...
03.06.2013

Annað námskeið í fararstjórn

Vegna mikillar aðsóknar á fararstjóranámskeið þann 3. júní mun ÍSÍ bjóða upp á annað námskeið þann 10. júní í E- sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst námskeiðið kl.19 og stendur til 21:30.
Nánar ...