Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
15

20.12.2019

Margrét og Júlían Íþróttafólk Reykjavíkur 2019

Margrét og Júlían Íþróttafólk Reykjavíkur 2019Í gær var tilkynnt um val á Íþróttafólki Reykjavíkur 2019. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 41. sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í sjöunda sinn kjörin íþróttakarl, íþróttakona og íþróttalið Reykjavíkur en í fyrsta sinn í ár voru tvö lið valin, eitt karlalið og eitt kvennalið.
Nánar ...
19.12.2019

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað þann 28. desember

Íþróttafólk sérsambanda heiðrað þann 28. desemberÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands afhendir viðurkenningar til íþróttakvenna og íþróttamanna sérgreina íþrótta þann 28. desember nk. í Silfurbergi í Hörpu. Hófið er haldið með Samtökum íþróttafréttamanna, sem velja síðan Íþróttamann ársins 2019. ​Afhending viðurkenninga íþróttafólks sérsambanda fer fram í beinni útsendingu á RÚV2 frá kl. 18:00. Bein útsending frá kjöri íþróttamanns ársins fer fram frá kl. 19:40 á RÚV. Íþróttamaður ársins er nú kjörinn í 64. sinn en þjálfari og lið ársins í áttunda sinn.
Nánar ...
17.12.2019

Már Gunnarsson sundmaður tekur við Instagrami ÍSÍ

Már Gunnarsson sundmaður tekur við Instagrami ÍSÍMár Gunnarsson, sundmaður og tónlistarmaður, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf á Þorláksmessu, mánudaginn 23. desember nk. Már mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.
Nánar ...
13.12.2019

Fulltrúar Íslands í Lausanne 2020

Fulltrúar Íslands í Lausanne 2020Á fundi Framkvæmdastjórnar ÍSÍ þann 12. desember voru tilnefningar SKÍ á þátttakendum á Vetrarólympíuleika ungmenna samþykktar. Við valið er farið eftir stigalista Alþjóða skíðasambandsins.
Nánar ...
13.12.2019

Már og Bergrún íþróttafólk ÍF

Már og Bergrún íþróttafólk ÍFÍ gær fór fram hóf Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) á Radisson Blu Hóteli Sögu þar sem kjöri á íþróttafólki ársins 2019 úr röðum fatlaðra var lýst. Már Gunnarsson sundmaður og frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir voru útnefnd íþróttamaður og íþróttakona ÍF fyrir árið 2019. Þetta er annað árið í röð sem Bergrún verður íþróttakona ársins en í fyrsta sinn sem Már hlýtur nafnbótina. Á hófinu hlaut Ásta Katrín Helgadóttir Hvataverðlaun ÍF 2019.
Nánar ...
11.12.2019

Ferðasjóður íþróttafélaga

Ferðasjóður íþróttafélagaÍSÍ vill minna íþrótta- og ungmennafélög á að opið er fyrir umsóknir um styrki úr í Ferðasjóði íþróttafélaga fyrir keppnisferðir ársins 2019 á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót.
Nánar ...
10.12.2019

Markviss hreyfiþjálfun barna

Markviss hreyfiþjálfun barna​Í nýjasta blaði ÍSÍ frétta er umfjöllun um eitt af þeim verkefnum sem á ​hug Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur allan og kallast YAP (Young Athlete Program). Anna Lína, eins og hún er alltaf kölluð, er menntaður íþróttakennari frá Laugarvatni og B.ED frá KHÍ auk framhaldsmenntunar við DHL/KU og MPM við HÍ. Hún hefur starfað hjá Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF) í að verða 30 ár sem framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og þróunarsviðs ÍF. Hún hefur í sínu starfi stutt við og eflt íþróttaiðkun fatlaðra, m.a. komið af stað nýjum hugmyndum og þróað nýjar greinar og búnað. Þá hefur hún hugsað út fyrir rammann, leitast eftir nýjungum í tækni og hrint því í framkvæmd að enn fleiri tækifæri yrðu opnuð á íþróttasviðinu fyrir einstaklinga með fötlun eða frávik.
Nánar ...
10.12.2019

ÍSÍ fréttir - Desember 2019

ÍSÍ fréttir - Desember 2019Í dag kemur út nýtt blað af ÍSÍ fréttum. Í blaðinu má lesa umfjöllun um verkefnið YAP (Young Athletes Program) og markvissa hreyfiþjálfun barna sem Anna Karólína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og þróunarsviðs Íþróttasambands fatlaðra hefur ferðast um landið með og kynnt á samt Ástu Katrínu Helgadóttur, íþróttakennara. Einnig má lesa um forvarnardaginn, sniðuga afmælisgjöf íþróttafélags til sérsambands, Vetrarólympíuleika ungmenna sem fara fram í janúar og aðra viðburði á vegum ÍSÍ á næstunni. Ýmislegt fleira er í blaðinu sem gaman er að skoða.
Nánar ...
10.12.2019

Ungmennafélagið Einherji 90 ára

Ungmennafélagið Einherji 90 áraUngmennafélagið Einherji hélt upp á 90 ára afmæli félagsins laugardaginn 7. desember síðastliðinn. Mikið fjölmenni sótti afmælisfagnaðinn sem haldinn var í Vopnafjarðarskóla. Félagið setti upp stóra ljósmyndasýningu af þessu tilefni þar sem saga félagsins var rakin. Auk þess gerðu þeir bræður Bjartur og Heiðar Aðalbjörnssynir magnað myndband um sögu Einherja sem frumsýnt var af þessu tilefni og vakti afar mikla lukku.
Nánar ...
09.12.2019

Íþróttabandalang Akureyrar Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

Íþróttabandalang Akureyrar Fyrirmyndarhérað ÍSÍÍþrótttabandalag Akureyrar fékk viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á jólaformannafundi bandalagsins fimmtudaginn 5. desember síðastliðinn. ÍBA er fjórða íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.
Nánar ...
09.12.2019

Júlían kraftlyftingamaður sýnir sinn dag

Júlían kraftlyftingamaður sýnir sinn dagJúlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingamaður, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf í dag, mánudaginn 9. desember. Júlían mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.
Nánar ...