Ólympíuleikar ungmenna fara fram í Nanjing í Kína í ár og verða þeir settir þann 16. ágúst nk.
Ísland mun eiga keppendur í knattspyrnu drengja auk þess sem að einn sundmaður hefur unnið sér inn þátttökurétt á leikunum.Nánar ...17.05.2014
Í tilefni af Ólympíuleikum ungmenna var ólympíueldurinn tendraður við hátíðlega athöfn þann 30. apríl í Aþenu í Grikklandi. Á sama tíma kom út nýtt smáforrit fyrir tölvur og síma sem kallast Rafræna kyndilhlaupið. Í leiknum geta kyndilberar farið um 204 lönd og svæði sem taka þátt í leikunum í ágúst á 98 dögum. Hugmyndin er sú að veita ungmennum út um allan heim það tækifæri að vera kyndilberar, að þau hjálpist að við að fara með eldinn í kringum heiminn og aftur til Nanjing og breiði þannig út boðskap ólympíuandans.Nánar ...22.03.2014
Í ágúst fara fram Ólympíuleikar ungmenna í borginni Nanjing í Kína. Ísland mun að þessu sinni eiga fulltrúa í hópi ungra sendiherra á leikunum, eða Young Ambassador og eru það 120 lönd sem fá að tilnefna slíkan aðila.
Fulltrúi Íslands verður Bjarki Benediktsson en hann hefur m.a. komið að þjálfun í knattspyrnu og stundar nú nám í Háskólanum í Reykjavík. Nánar ...23.02.2014
Nú líður að lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi en hún hefst kl. 16:00 í dag, að íslenskum tíma.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur valið Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur til að vera fánaberi íslenska Ólympíuhópsins á lokahátíðinni en Helga María, sem er aðeins 18 ára, stóð sig afar vel á leikunum.
Nánar ...19.02.2014
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Nánar ...11.02.2014
Í dag keppti Sævar Birgisson í sprettgöngu á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi og var þar með fyrstur af íslensku keppendunum fimm til að keppa á leikunum.
Nánar ...04.02.2014
María Guðmundsdóttir keppandi í alpagreinum skíðaíþrótta slasaðist á móti í Þýskalandi í gær. Ljóst er að hún mun ekki geta keppt á Vetrarólympíuleikunum í Sochi sem hefjast þann 7. febrúar nk. og hefur Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskað formlega eftir því við ÍSÍ að varamaður keppi í hennar stað. Nánar ...01.02.2014
Nú styttist í að XXII Vetrarólympíuleikarnir verða settir í Sochi í Rússlandi, en þeir verða settir þann 7. febrúar nk. Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins, er kominn til Sochi og byrjaður að undirbúa vistarverur íslenska hópsins. Nánar ...23.01.2014
Nú fyrir stundu var tilkynnt hverjir verða þátttakendur Íslands á Vetrarólympíuleikunum í Sochi 7.-23. febrúar næstkomandi. Það var gert í móttöku í sendiráði Rússlands í Reykjavík. Nánar ...30.10.2013
Í dag 30. október 2013 eru 100 dagar í að Vetrarólympíuleikarnir í Sochi verða settir.
Það má því með réttu segja að lokaundirbúningur sé hafinn, en þessa dagana eru íþróttamenn að vinna að því að ná tilsettum árangri til að tryggja sér keppnisrétt á leikunum.
Nánar ...09.09.2013
Alþjóðaólympíunefndin heldur sitt 125. ársþing þessa dagana í Buenos Aires í Argentínu.
Á laugardaginn fór fram kosning um gestgjafa Ólympíuleikanna 2020, en þrjár borgir voru þar í kjöri.
Tokyo í Japan varð fyrir valinu á undan Istanbul og Madrid. Hlaut Tokyo 60 atkvæði í seinni umferð kosninga á móti 35 atkvæðum Istanbul. Madrid hafði fallið út í fyrri umferðinni, en borg þarf að hljóta meirihluta atkvæða til að verða valin sem gestgjafi, og því þarf stundum nokkrar umferðir til að velja sigurvegara.Nánar ...