Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
8

Sochi 2014 – Breyting á íslenska hópnum

04.02.2014

María Guðmundsdóttir keppandi í alpagreinum skíðaíþrótta slasaðist á móti í Þýskalandi í gær.  Ljóst er að hún mun ekki geta keppt á Vetrarólympíuleikunum í Sochi sem hefjast þann 7. febrúar nk. og hefur Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskað formlega eftir því við ÍSÍ að varamaður keppi í hennar stað. 

SKÍ tilnefndi Erlu Ásgeirsdóttur sem varamann á leikana og hefur Erla verið að standa sig vel að undanförnu.  Hún náði viðmiðum Alþjóðaskíðasambandsins (FIS) varðandi þátttökurétt á leikana og í fyrradag náði hún sínum besta árangri til þessa á móti í Kongsberg í Noregi.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur samþykkt beiðni Skíðasambands Íslands og mun óska eftir því við Alþjóðaólympíunefndina (IOC) og Alþjóðaskíðasambandið (FIS) að Erla fái að keppa á leikunum.

Jafnframt er Maríu Guðmundsdóttur óskað góðs bata en hennar verður sárt saknað í Sochi.

Á myndinni má sjá Erlu Ásgeirsdóttur, verðandi Ólympíufara.