Fréttir frá Sumarleikum ungmenna
YOG:Sjötti keppnisdagur
Þá er keppni lokið hjá okkar fólki þennan daginn á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires.YOG: Fimmti keppnisdagur
Þá er fimmta keppnisdegi lokið á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires. Íslenskir keppendur tóku þátt í golfi, sundi og frjálsíþróttum.YOG: Fjórði keppnisdagur
Þá er fjórða keppnisdegi lokið á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires.YOG: Þriðji keppnisdagur
Þá er þriðja keppnisdegi lokið á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires. Íslenskir keppendur tóku þátt í sundi, golfi og fimleikum.Senegal - gestgjafi Ólympíuleika ungmenna 2022
4. Sumarólympíuleikar ungmenna verða haldnir í Dakar í Senegal árið 2022. Alþjóðaólympíunefndin tók ákvörðun um staðsetningu leikanna á fundi nefndarinnar í Buenos Aires í dag en þetta verður í fyrsta skipti sem Ólympíuleikar ungmenna verða haldnir í Afríku. Ráðstefna IOC í Buenos Aires
Í síðustu viku fór fram ráðstefna Alþjóðaðólympíunefndarinnar (IOC) sem fjallaði um Ólympíuhugsjónina á víðtækan hátt. „Olympism in Action" var yfirskrift ráðstefnunnar og fór hún fram í Buenos Aires dagana 5. og 6. október sl. í tengingu við Ólympíuleika ungmenna sem standa nú yfir í borginni.YOG: Verðlaunapeningar á Ólympíuleikum ungmenna
Nú standa yfir Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Eins og á öllum Ólympíuleikum hlýtur það íþróttafólk verðlaunapening að launum sem nær verðlaunapalli og eru Ólympíuleikar ungmenna engin undantekning. Alþjóðaólympíunefndin stóð fyrir hönnunarkeppni á verðlaunapeningum fyrir Ólympíuleika ungmenna 2018 og bárust 300 tillögur frá 50 þjóðum. Sigurvegari keppninnar, Muhamad Farid Husen, frá Indónesíu, kallaði tillögu sína að útliti verðlaunapeninganna „Fireworks of Victory“. Eins og hið myndræna nafn gefur til kynna tekur hönnun verðlaunapeninganna mið af fallegri ásýnd flugelda þegar þeir springa á himninum.
Ólympíuleikar ungmenna - Streymi
Alþjóðaólympíunefndin og Ólympíurásin (Olympic Channel) verða með streymi frá Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires. ÍSÍ hefur sett inn á heimasíðu sína sérstakt viðmót þar sem hægt er að fylgjast með keppni á leikunum, skoða upplýsingar um keppendur, úrslit o.fl.YOG: Annar keppnisdagur
Þá er öðrum keppnisdegi lokið á Ólympíuleikum ungmenna í Buenos Aires. Í dag kepptu þau Snæfríður Sól Jórunnardóttir í 100m skriðsundi og Martin Bjarni Guðmundsson í hringjum og í stökki í áhaldafimleikum.YOG: Fyrsti keppnisdagur
Buenos Aires 2018 - leikar settir
Ólympíuleikar ungmenna settir
Ólympíuleikar ungmenna 2018 verða settir í kvöld í Buenos Aires í Argentínu. Lokahátíð leikanna fer fram kvöldið 18. október. Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt íþróttafólk á aldrinum 15 til 18 ára. Á leikunum er keppt í 32 íþróttagreinum, bæði hefðbundnum sem og nýstárlegri greinum. Í fyrsta sinn á Ólympískum viðburði eru jafn margir kvenkyns og karlkyns keppendur.