Í dag eru 11 mánuðir þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst.
Nánar ...24.07.2020
Fjórir Ólympíufarar munu taka yfir Instagram Ólympíuleikanna og spjalla við gesti síðunnar í dag. Það eru Simone Biles fimleikakona og Nathan Adrian sundmaður ásamt japanska fimleikafólkinu Murakami Mai og Uchimura Kohei.Nánar ...23.07.2020
Í dag er eitt ár þangað til setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó fer fram þann 23. júlí 2021. Leikarnir standa yfir í rúmar tvær vikur og lýkur með lokahátíð þann 8. ágúst.
Nánar ...25.05.2020
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafa nú undirritað nýjan samning sem felur í sér samvinnu um heilbrigðari lífsstíl fólks í gegnum íþróttir. Samninginn undirrituðu Thomas Bach forseti IOC og Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri WHO þann 16. maí sl. í höfuðstöðvum WHO í Genf. Bach sagði við tilefnið að mikilvægi íþrótta og líkamsræktar fyrir andlega og líkamlega heilsu hafi orðið enn ljósara síðastliðna mánuði á tímum kórónaveirunnar.
Nánar ...18.05.2020
Alþjóðaólympíunefndin (IOC) sendi frá sér fréttatilkynningu á dögunum varðandi styrki sem nefndin ætlar að veita vegna Covid faraldursins og afleiðinga hans á alþjóðaíþróttahreyfinguna. IOC áætlar að veita þurfi allt að 117 milljörðum króna í sérstakan sjóð til að mæta tapi vegna frestunar Ólympíuleikanna sem fara áttu fram í Tókýó í júlí nk. Leikunum hefur verið frestað um eitt ár og hefur það haft töluverðar fjárhagslegar afleiðingar fyrir skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó. IOC tilkynnti að skipulagsnefndin fái 95 milljarða króna til að takast á við kostnað sem fylgir frestuninni og til að bæta upp tap sem orðið hefur vegna hennar. Til alþjóðasérsambanda og ólympíunefnda fara 22 milljarðar króna svo hægt sé að halda áfram undirbúningi vegna Ólympíuleika, stuðningi við íþróttafólk og áframhaldandi þróun á íþróttahreyfingunni. Samböndin geta sótt um að fá hluta fjárins að láni ef þau eiga í lausafjárvandræðum vegna faraldursins. Ólympíusamhjálpin hefur einnig aukið við styrkveitingar sínar til íþróttafólks um 2 milljarða króna, en 1600 íþróttamenn frá 185 Ólympíunefndum eru á styrk hjá Ólympíusamhjálpinni ásamt ólympísku liði flóttafólks.
Nánar ...02.04.2020
Íþróttamannanefnd Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) gaf út yfirlýsingu á dögunum þar sem nefndin fagnaði og studdi að fullu ákvörðun IOC, Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) og skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í Tókýó 2020 um að fresta Ólympíuleikunum í Tókýó um eitt ár, eða til 23. júlí 2021 og Paralympics um eitt ár, eða til 24. ágúst 2021.
Nánar ...30.03.2020
Alþjóðaólympíunefndin (IOC), Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra (IPC), skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020, japönsk yfirvöld og borgarstjórn Tókýó tilkynntu nýjar dagsetningar fyrir Ólympíuleikana og Ólympíumót fatlaðra í dag.
Nánar ...27.03.2020
Forsætisráðherra Japans, Shinzō Abe og Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), samþykktu í kjölfar viðræðna í dag að fresta Ólympíuleikunum sem fram áttu að fara í Tókýó í júlí nk. Ólympíumóti fatlaðra hefur jafnframt verið frestað. Rétt í þessu birtist sameiginleg yfirlýsing á vefsíðu IOC. Í yfirlýsingunni segir einnig að halda skuli leikana í síðasta lagi sumarið 2021.
Nánar ...19.03.2020
Í dag, þann 19. mars, fór fram látlaus athöfn án áhorfenda á Panathenaic leikvanginum í Ólympíu í Grikklandi þegar skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020 tók við Ólympíukyndlinum úr höndum Grikkja. Á þeim leikvangi voru fyrstu nútímaleikarnir haldnir árið 1896 og hefur skapast hefð fyrir því að afhenda skipulagsnefnd þeirrar þjóðar sem heldur leikana Ólympíukyndilinn við hátíðlega athöfn.
Nánar ...18.03.2020
Forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), Thomas Bach, hefur síðustu tvo daga átt fjarfundi með fulltrúum alþjóðasérsambanda, öllum 206 Ólympíunefndunum heimsins, fulltrúum íþróttafólks, Alþjóðaólympíunefnd fatlaðra (IPC) og öðrum hagsmunaaðilum, í tengslum við Ólympíuleikana í Tókýó 2020.Nánar ...