Morgundagurinn, 29. maí, er hlaðinn spennandi íþróttaviðburðum á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi.
Landslið kvenna og karla í blaki munu etja kappi við San Marínó, kvennaliðið kl. 13 að staðartíma og karlaliðið kl. 16 að staðartíma.Nánar ...28.05.2019
Fjölmargar íþróttagreinar fóru fram í dag á Smáþjóðaleikunum. Íslendingar áttu keppendur í borðtennis, blaki, körfuknattleik, sundi og júdó. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, ferðaðist á milli keppnisstaða í dag og fylgdist m.a. með keppni í borðtennis, júdó og körfuknattleik.
Nánar ...28.05.2019
Sundkeppni Smáþjóðaleikanna hófst í dag, en hún er með töluvert öðru sniði en áður hefur tíðkast á leikunum. Engin riðlakeppni er að morgni heldur synt í beinum úrslitum eftir hádegi og búið er að fjölga greinum og fækka dögum.
Nánar ...28.05.2019
Einstaklingskeppni í júdó á Smáþjóðaleikunum fór fram í dag og unnu íslensku keppendurnir til fernra verðlauna. Egill Blöndal hlaut silfurverðlaun eftir spennandi úrslitaglímu í -90 kg flokki við Schwendingar frá Liechtenstein.Nánar ...28.05.2019
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik lagði Möltu í dag, í sínum fyrsta leik á Smáþjóðaleikunum, 61:35. Íslensku stúlkurnar spiluðu vel og var góð stemmning í hópnum. Þóra Kristín Jónsdóttir og Hallveig Jónsdóttir skoruðu 11 stig hvor og voru stigahæstar í íslenska liðinu. Helena Sverrisdóttir skoraði 10 stig og þær Hildur Björg Kjartansdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir 8 stig hvor.
Nánar ...28.05.2019
Karlalandsliðið í blaki mætti Svartfellingum á Smáþjóðaleikunum í dag í sínum fyrsta leik í keppninni. Fyrirfram var Svartfellingum spáð góðu gengi á mótinu og því búist við að á brattann yrði að sækja. Byrjunarlið Íslands var skipað þeim Hafsteini og Kristjáni Valdimarssonum á miðjunum, Theódóri Óskari Þorvaldssyni og Ævari Frey Birgissyni á köntunum, Bjarka Benediktssyni í díó og Mána Matthíassyni í uppspil.
Nánar ...28.05.2019
Íslenskir keppendur í borðtennis hófu keppni í dag á Smáþjóðaleikunum 2019. Í dag var keppt í liðakeppni kvenna og liðakeppni karla. Þann 30. maí er keppt í tvíliðaleik og í einliðaleik 31. maí. Lokadaginn, 1. júní, er leikið til úrslita í einliðaleik og tvíliðaleik.
Nánar ...28.05.2019
Íslenska kvennalandsliðið í blaki mætti Kýpur í morgun í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi. Byrjunarlið Íslands var skipað þeim Jónu Guðlaugu Vigfúsdóttur og Helenu Kristínu Gunnarsdóttur á köntunum, Gígju Guðnadóttur og Söru Ósk Stefánsdóttur á miðjunum, Thelmu Dögg Grétarsdóttur í díó og Önu Mariu Vidal Bouza í uppspil og Kristinu Apostalovu í stöðu frelsingja.
Nánar ...28.05.2019
Setningarhátíð Smáþjóðaleikanna 2019 fór fram í kvöld kl.21.00 að staðartíma (kl. 19.00 ísl. tíma). Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir frjálsíþróttakona var fánaberi íslenska hópsins.
Nánar ...27.05.2019
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, 17 ára keppandi í frjálsíþróttum, verður fánaberi Íslands við setningarhátíð Smáþjóðaleikanna 2019 sem fer fram kl. 21 að staðartíma í kvöld. Guðbjörg Jóna var einnig fánaberi á Ólympíuleikum ungmenna 2018 í Buenos Aires. Á þeim leikum vann hún 200m hlaupið og varð þar með fyrst Íslendinga til að vinna til gullverðlauna á Ólympíuleikum ungmenna ásamt því að vera fyrst til að vinna til gullverðlauna á leikum á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Sama ár varð hún Evrópumeistari U18 ára í 100 metra hlaupi á Evrópumeistaramóti U18 ára í frjálsíþróttum í Ungverjalandi 2018.
Nánar ...