Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Íþróttamiðstöðin í Laugardal

Í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal eru til húsa flest öll sérsambönd ÍSÍ ásamt fjölmörgum aðilum sem tengjast íþróttahreyfingunni.

Íþróttamiðstöðin skiptist í fjögur hús.

 
Hús 1.
Í þessu húsi er Íþróttabandalag Reykjavíkur með skrifstofur sínar.  Auk þess er Atlas Endurhæfing með aðstöðu í húsinu.
 
Hús 2.
Á jarðhæð er veitingastaðurinn Café-Easy.  Á hæð 2 er Handknattleikssamband Íslands til húsa og á efstu hæð eru skrifstofur Golfsambands Íslands, Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands og Akstursíþróttasambands Íslands.
 
Hús 3.
Á hæð 2 eru nokkrir aðilar með skrifstofur, þar á meðal Körfuknattleikssamband Íslands, Karatesamband Íslands, Taekwondosamband Íslands, Landssamband hestamannafélaga, Siglingasamband Íslands, Keilusamband Íslands, Hjólreiðasamband Íslands, Hnefaleikasamband Íslands og Þríþrautarsamband Íslands.  Á hæð 3 er Þjónustumiðstöð UMFÍ og fundarsalir ÍSÍ og á hæð 4 eru höfuðstöðvar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
 
Hús 4.
Á hæð 2 eru skrifstofur Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, eða Lottó og 1X2.  Á hæð 3 og 4 eru síðan skrifstofur sérsambanda.