Sigurbjörn Bárðarson
Sigurbjörn Bárðarson var útnefndur í Heiðurshöll ÍSÍ á hófi Íþróttamanns ársins 4. janúar 2025.
Sigurbjörn er fæddur 2. febrúar 1952.
Sigurbjörn á einn lengsta keppnisferil í fremstu röð sem nokkur íþróttamaður hefur átt á Íslandi. Hann hefur keppt í öllum greinum hestaíþrótta í 57 ár, er margfaldur Íslands- og heimsmethafi í skeiðgreinum, hefur 13 sinnum unnið til gullverðlauna á Heimsmeistaramótum, unnið yfir 120 Íslandsmeistaratitla og sigrað flestar greinar Landsmóta, nú síðast árið 2022 þá 70 ára gamall.
Sigurbjörn var kjörinn Íþróttamaður ársins árið 1993 og hefur fimm sinnum verið tilnefndur í hóp 10 efstu í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna.
Sigurbjörn hefur verið í fararbroddi þegar kemur að ímynd sinnar íþróttagreinar, þróun reiðmennsku og kynningarstarfs íslandshestamennskunnar um allan heim. Hann hefur verið virkur í félags- og menntamálum hestamanna og setið í sem formaður menntanefndar við Háskólans á Hólum í áraraðir. Frá árinu 2018 hefur hann gegnt starfi landsliðsþjálfara A-landsliðs LH og staðið þar fyrir umbyltingu í öllu afreksstarfi sambandsins og náð eftirtektarverðum árangri.
Sigurbjörn hefur frá upphafi ferils sýns verið fyrirmynd annars hestafólks þegar kemur að reglusemi, ástundun, elju og snyrtimennsku og átt þannig stóran þátt í bættri ásýnd og fagmennsku innan íþróttarinnar.
Hann hefur hlotið Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu og Heiðursverðlaun Landssambands hestamannafélaga fyrir störf sín í þágu hestaíþrótta á Íslandi, er heiðursfélagi hestamannafélagsins Fáks og Félags Tamningamanna, svo eitthvað sé nefnt.
Það er ÍSÍ mikill heiður að útnefna Sigurbjörn Bárðarson í Heiðurshöll ÍSÍ.
Myndasíða ÍSÍ - Sigurbjörn Bárðarson