Fræðsla um bókhald og ársreikning - 4. mars!
02.03.2026
ÍSÍ og UMFÍ standa fyrir stuttu netfræðsluerindi um grunnatriði í bókhaldi og uppbyggingu ársreikninga, fyrir starfsfólk og stjórnendur sambandsaðila og aðildarfélög þeirra.
Fræðsluerindið verður flutt tvisvar sinnum miðvikudaginn 4. mars, annars vegar á milli kl. 12:00 - 13:00 og aftur á milli kl. 20:00 - 21:00.
Á meðal þess sem farið verður yfir:
- Lög um bókhald
- Framsetning og innihald ársreikninga
- Leiðbeiningar um fjármál íþróttahreyfingarinnar.
- Leiðbeiningar um skattskyldu.
- Gerð fjárhagsáætlana.
- Almannaheillaskrá Skattsins.
Smelltu hér til að skrá þig til leiks: Skráning á fræðsluerindi