Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
19

Lífshlaupið fær viðurkenningu frá EWWS (European Week of Winter Sport).

19.02.2026

 

Í ár var Lífshlaupið í samstarfi við European Week of Winter Sport (EWWS). EWWS er Evrópuverkefni á vegum L’ORMA á Ítalíu og er hluti af ERASMUS+. Markmiðið er að efla samstarf og sýnileika íþróttasamtaka í Evrópu og hvetja fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og vetraríþrótta.

ÍSÍ er stoltur samstarfsaðili, og með því að tengja Lífshlaupið við verkefnið var skapaður vettvangur þar sem heilsuefling á Íslandi, fékk aukið vægi á evrópskum vettvangi. Markmiðið var að hvetja fólk til reglulegrar hreyfingar, styrkja tengsl við íþróttahreyfinguna og styðja við jákvæð samfélagsáhrif.

Í kjölfarið hlaut Lífshlaupið viðurkenningu fyrir þátttöku og framlag sitt til heilsueflingar almennings.