Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
19

Arna Sigríður Albertsdóttir á leið á Vetrar Paralympics

17.02.2026

 

Arna Sigríður Albertsdóttir hefur tryggt sér þátttökurétt á Vetrar Paralympics í skíðagöngu, sem fram fara í Milano Cortina dagana 6.–15. mars, á sama stað og Vetrarólympíuleikarnir. Með þátttökunni verður Arna fyrsta íslenska konan til að keppa í skíðagöngu á Vetrar Paralympics og jafnframt fyrsta íslenska konan til að taka þátt bæði á Sumar Paralympics og Vetrar Paralympics.

Arna keppti áður í handahjólreiðum á Sumar Paralympics í Tókýó 2020 (2021).

Á leikunum mun Arna keppa í sprettgöngu þann 10. mars og í 10 km skíðagöngu þann 11. mars.

Íþrótta og Ólympíusamband Íslands óskar Örnu Sigríði Albertsdóttur innilega til hamingju með þátttökuréttinn og við hlökkum til að fylgjast með henni á Vetrar Paralympics.