Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
5

Íþróttamaður ársins 2025 er Eygló Fanndal Sturludóttir

03.01.2026

 

Í kvöld voru úrslit í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna (SÍ) um Íþróttamann ársins 2025 tilkynnt, í beinni útsendingu RÚV frá sameiginlegu hófi ÍSÍ og SÍ í Silfurbergi í Hörpu. Að þessu sinni var það Eygló Fanndal Sturludóttir, afreksíþróttakona úr ólympískum lyftingum sem hreppti heiðursnafnbótina.

Þau þrjú efstu í kjörinu voru Eygló, Gísli Þorgeir Kristjánsson handknattleiksmaður og Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleiksmaður.

Um sigurvegarann:

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir er íþróttamaður ársins 2025. Er þetta í fyrsta skipti sem Eygló er kosin íþróttamaður ársins en hún hafnaði í þriðja sæti í kjörinu árið 2024. Eygló átti hreinlega magnað ár þar sem hún varð Evrópumeistari kvenna í -71 kg ólympískum lyftingum og Evrópumeistari í jafnhendingu. Auk þess var hún silfurverðlaunahafi í snörun.

Eygló var einnig sigurstrangleg á heimsmeistaramótinu á árinu en missti af því vegna meiðsla.

Eygló hlaut 532 stig í kjörinu í ár þar sem mest var hægt að fá 600 stig. 

Þjálfari ársins var valinn Ágúst Þór Jóhannsson hjá kvennaliði Vals í handknattleik og Lið ársins var valið kvennalið Vals í handknattleik.   

ÍSÍ óskar Eygló, Ágústi Þór, liðsmönnum kvennaliðs Vals í handknattleik og teymi þeirra, sem og íþróttafólki sérsambanda 2025 hjartanlega til hamingju með titlana og viðurkenningarnar.

Myndir með frétt