Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
19

Valgeir endurkjörinn forseti Evrópska keilusambandsins

27.10.2025

 

Valgeir Guðbjartsson var í gær endurkjörinn forseti Evrópska keilusambandsins (European Bowling Federation - EFB) en kosningin fór fram á ársþingi EFB í Vínarborg. Þingið sóttu Valgerður Rún Benediktsdóttir, formaður Keilusambandsins, og Þórarinn Már Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Keilusambandsins.

Valgeir hefur gegnt embætti forseta EFB frá 2023 en hann hefur um árabil unnið ötult starf á Íslandi sem og á erlendum vettvangi í eflingu og þróun keiluíþróttarinnar.

ÍSÍ óskar Valgeiri innilega til hamingju með endurkjörið og góðs gengis í forsetaembættinu á kjörtímabilinu.