Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16

Ólafur Þór sæmdur Silfurmerki ÍSÍ

15.09.2025

 

Ólafur Þór Ólafsson, fráfrandi formaður Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði, var sæmdur Silfurmerki ÍSÍ á 90 ára afmælishátið Reynis 29. ágúst síðastliðinn en í dag, 15. september, eru 90 ár frá stofnun félagsins.

Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ og meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ, afhenti Ólafi Þór heiðursviðurkenninguna fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Á hátíðinni voru einnig afhentar viðurkenningar af hálfu KSÍ, sjá nánar í frétt félagsins hér.

Ólafur Þór hefur lengi sinnt leiðtogastörfum fyrir Knattspyrnufélagið Reyni, meðal annars gegnt formannsembættinu tvisvar, í samtals um áratug. Einnig hefur hann komið að stuðningi við íþróttastarfið í Sandgerði og víðar í störfum sínum sem bæjarfulltrúi í Sandgerði og Suðurnesjabæ.

Ljósmyndari/France Jón