Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
5

Hjólað í vinnuna lokið - 222 hringir í kringum landið

02.06.2025

 

Hjólað í vinnuna, heilsu- og hvatninarverkefni ÍSÍ, er lokið og fór verðlaunaafhending fram í húsakynnum ÍSÍ í hádeginu í dag. Samkvæmt hjólateljurum höfuðborgarsvæðisins var mikil aukning hjólandi á meðan átakið stóð yfir, frá. 7. - 27. maí. 

Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi og gott merki þess að sumarið er á næsta leyti. Megin markmið verkefnisins er að þátttakendur hugi að daglegri hreyfingu og nýti til þess virkan ferðamáta til og frá vinnu, en það er einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan þess sem hjólar, heldur er þetta einnig hagkvæm leið til að komast á milli staða og jákvætt fyrir umhverfið.

Með þessu verkefni vill ÍSÍ bjóða upp á verkefni sem hvetur til hreyfingar en á sama tíma er sjálfbært og jákvætt fyrir umhverfið. Í gegnum tíðina höfum við fundið hvað verkefnið skiptir marga vinnustaði og skóla máli og er stór þáttur í að byggja upp góðan starfsanda og þjappa starfsfólki saman.  

Eins og undanfarin ár er keppt um fjölda þátttökudaga, en lið geta einnig skráð sig sérstaklega í kílómetrakeppnina þar sem keppt er um bæði heildarfjölda kílómetra og hlutfall kílómetra miðað við heildarfjölda starfsmanna.

Helstu tölur úr Hjólað í vinnuna árið 2025:

Heildarfjöldi virkra vinnustaða: 330
Virkir þátttakendur: 4.346
Skráð lið í kílómetrakeppni: 237
Hjólaðir kílómetrar: 297.450 - það nemur 222 hringjum í kringum Ísland.

Ferðamátinn skiptist svona:

Reiðhjól - 64,3%
Rafmagnshjól - 22,4%
Gangandi - 7,8%
Strætó/gangandi - 2,5%
Rafskutlur - 1,7%
Hlaup - 0,6%
Samferða/gengið - 0,4%
Strætó/hjólandi - 0,2%


Úrslit úr vinnustaðakeppninni:

Vinustaðir með 3-9 starfsmenn
1. Nav.is 
2. Efnalaug Suðurlands
3. Leikstólinn Tangi

Vinnustaðir með 10-19 starfsmenn
1. Náttúrustofa Austurlands
2. Betri samgöngur
3. Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið á Akureyri

Vinnustaðir með 20-39 starfsmenn
1. Sabre Iceland
2. Heilsuleikskólinn Suðurvellir
3. Leikskólinn Stakkaborg

Vinnustaðir með 40-69 starfsmenn
1. Þjóðskjalasafn Íslands
2. Hopp Reykjavík
3. Carbfix

Vinnustaðir með 70-129 starfsmenn
1. Brekkuskóli
2. Síðuskóli
3. Grundaskóli

Vinnustaðir með 130-399 starfsmenn
1. Íslensk erfðagreining
2. Nova
3. Veðurstofa Íslands

Vinnustaðir með 400-799 starfsmenn
1. Efla
2. Íslandspóstur
3. Advania 

Vinnustaðir með 800+ starfsmenn
1. Landsbankinn
2. Alvotech
3. Háskóli Íslands


Úrslit úr kílómetrakeppninni:

Heildarkeppnin:
1. Harpa
2. Golli feiti (Íslensk erfðagreining)
3. Fjallakofinn

Hlutfallskeppnin:
1. Golli feiti (Íslensk erfðagreining)
2. Harpa
3. Bakkabræður


Nokkrir leikir voru í gangi á meðan á átakinu stóð; skráningarleikur Rásar 2 og ÍSÍ, útdráttarverðlaun, myndaleikur og liðsstjóraleikur.

Morgunverkin á Rás 2 veittu skráningarverðlaun alla virka daga og fengu verðlaunahafar ljós á hjólið frá Erninum og varning frá Unbroken. Vinningshafa má finna á heimasíðu Hjólað í vinnuna. 

Stærstu skráninarverðlaunin fékk Sindri Andreas Bjarnason, starfsmaður Össurar, sem vann glæsilegt hjól frá Erninum. 

Í myndaleiknum tóku þátttakendur myndir eða myndbrot og settu á Instagram, Facebook eða sendu okkur myndir í gegnum heimasíðu verkefnisins. Vinningshafar fengu framljós frá Erninum og gjafabréf frá Unbroken. 

10 liðsstjórar voru svo dregnir út og fengu þeir standpumpur frá Erninum í verðlaun,

Vinningshafar geta leitað vinninga á skrifstofu ÍSÍ við Engjaveg 6, á 4. hæð.

Samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna eru Icelandair, Íslensk Getspá, Toyota, Örninn, Rás2, Unbroken, Reiðhjólabændur og Hopp. 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og samstarfsaðilar Hjólað í vinnuna þakka öllum þátttakendum kærlega fyrir drengilega og skemmtilega keppni og óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.







Myndir með frétt