Fráfarandi forseti IOC á Smáþjóðaleikunum

Thomas Bach, fráfarandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), var gestur Smáþjóðaleikanna í Andorra. Hann ávarpaði á setningarhátíð leikanna og sagði meðal annars að í íþróttum væru allir jafnir. Ekki skipti máli hvaðan þátttakendur kæmu, hvort það væri frá stóru eða smáu landi, heldur skipti máli að hafa ástríðu fyrir íþróttum.
Thomas Bach hættir störfum sem forseti IOC þann 23. júní næstkomandi eftir 12 ár í embætti, og tekur þá Kirsty Coventry við sem forseti. Bach hefur þegar verið gerður að Heiðursforseta IOC, sem er titill sem helst ævilangt.
Bach sótti íþróttaviðburði þá daga sem hann dvaldi í Andorra og snæddi með íþróttafólkinu í mathöll leikanna. Einnig sótti hann afmæliskvöldverð Ólympíunefndar Andorra sem fagnar 50 ára afmæli á ár.
Spyros Capralos, forseti Evrópusambands Ólympíunefnda, sótti einnig leikana ásamt fleira forystufólki úr alþjóðasamböndum íþrótta.