Ísland fer heim með 75 verðlaun frá Andorra

Keppni lauk á Smáþjóðaleikunum í Andorra í dag. Eftir fimm keppnisdaga fer Ísland heim með 75 verðlaunapeninga; 26 gullverðlaun, 22 silfurverðlaun og 27 bronsverðlaun. Ísland er í þriðja sæti yfir flest verðlaun á mótinu og í þriðja sæti yfir flest gullverðlaun. Víða náðist afbragðs árangur og fjölmargir búnir að leggja ríkulega inn í reynslubankann eftir harða keppni. Í dag keppti Ísland í þremur greinum; strandblaki, frjálsíþróttum og götuhjólreiðum.
Strandblak
Kvennaliðið í strandblaki spilaði sinn síðasta leik þegar liðið mætti Mónakó. Lið Mónakó vann fyrstu hrinuna 21-15. Þær Thelma og Jóna Margrét börðust vel í annarri hrinunni en henni lauk með sigri Mónakó, 21-17, og leiknum lauk þar með 2-0. Íslenska kvennalandsliðið var grátlega nálægt bronsverðlaunum því Andorra, sem Ísland vann fyrr í keppninni, endaði með sama stigafjölda og því þurfti að skoða fjölda stiga í leik til að ná að lyfta Andorra upp. Innbyrðisviðureignir gilda ekki.
Karlalandsliðið kláraði Smáþjóðaleikana á góðum nótum en þeir Benedikt Baldur og Hermann unnu lokaleikinn í dag gegn Liechtenstein 2-0, eftir hörkurimmu, úrslitin í hrinunum voru 21-17 og 21-18. Veikindi komu upp hjá liðinu í vikunni og því ánægjulegt að klára keppnina á sigri en íslenska liðið hafnaði í 5. sæti.
Götuhjólreiðar
Í dag var komið að keppni í götuhjólreiðum karla og kvenna. Bæði lið hjóluðu sömu braut en karlarnir fóru fleiri hringi. Brautin lá um götur Andorra en lokahringurinn var lengri og náði upp í fjall áður en hjólað var niður aftur og í endamarkið. Leiðin var krefjandi og fékk sumt hjólreiðafólkið vænar byltur en sluppu með misstórar skrámur.
Í karlaflokki náði Ingvar Ómarsson bestum árangri en Ingvar hafnaði í 13. sæti af 34. Keppendum, kom í mark 2:06:07. Eyjólfur Guðgeirsson, Kristinn Jónsson og Daníel Freyr Steinarsson komu síðan allir í mark á 2:20:05 en þeim Breka Gunnarssyni og Davíð Jónssyni tókst ekki að klára keppnina.
Hafdís Sigurðardóttir kom fyrst í mark af íslensku keppendunum í kvennaflokki en hún varð 9. yfir endamarkið á 1:35:45. Bríet Kristí Gunnarsdóttir varð í 19. sæti, Júlía Oddsdóttir í 20. sæti, Silja Jóhannesdóttir varð í 22. sæti, Sara Arnardóttir í 23. sæti og Sóley Kjerúlf Svansdóttir í 26. sæti.
Frjálsíþróttir
Lokadagur frjálsíþróttanna var líflegur og náði Ísland alls í eitt gull, þrjú silfur og sex brons í dag. Ívar Kristinn Jasonarson vann fyrstu verðlaun dagsins þegar hann kom fyrstur í mark í 400 metra grindahlaupi á 51,74 sekúndu. Þetta er þriðji besti tími Ívars í greininni og var hann aðeins 30 sekúndubrotum frá sínum besta tíma.
Þorleifur Einar Leifsson kom annar í mark í 110 metra grindahlaupi en hann hljóp á 14,74 sekúndum. Þá fékk Örn Davíðsson silfur í spjótkasti, lengsta kast hans var 68,08 metrar, og Kristófer Þorgrímsson fékk silfur í 200 metra hlaupi þegar hann hljóp á 21,42 sekúndum. Kolbeinn Höður Gunnarsson kom þriðji í mark í 200 metra hlaupinu á 21,63. Eir Chang Hlésdóttir fékk brons í 200 metra hlaupi, tíminn hennar var 24,31 sekúnda og þá fékk Guðjón Dunbar Þorsteinsson brons í þrístökki þegar hann stökk 14,66 metra og er það persónulegt met hjá Guðjóni. Hlynur Andrésson varð svo þriðji í mark í 10000 metra hlaupi.
Í 4x100 metra boðhlaupi karla fékk íslenska sveitin, þeir Þorleifur Einar Leifsson, Kristófer Þorgrímsson, Kolbeinn Höður Gunnarsson og Sæmundur Ólafsson, bronsverðlaun en sveitin kom í mark á 41,17 sekúndum. Kvennasveitin í 4x400 metra boðhlaupi fékk einnig brons en þær Eir Chang Hlésdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Ísold Sævarsdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttur komu í mark á 3:40,75.
Íslenski hópurinn stóð sig með stakri prýði í Andorra, innan sem utan vallar. Lokahátíð leikanna er í kvöld og brottför heim til Íslands í fyrramálið. Næstu Smáþjóðaleikar verða í Mónakó eftir tvö ár.