Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

Íslenski þjóðsöngurinn vinsælastur í sundhöllinni

30.05.2025

 

Fjórði og næstsíðasti keppnisdagur Smáþjóðaleikanna fór fram í dag og átti Ísland keppendur í blaki, strandblaki, tennis og í sundi. Í sundlauginni hélt íslenska sundsveitin áfram að sópa til sín verðlaunum og íslenski þjóðsöngurinn var nánast orðinn fastur liður í sundhöllinni.

Sund
Sundkeppni leikanna lauk í dag og fór úrslitahlutinn fram fyrir hádegi. Birgitta Ingólfsdóttir vann fyrsta gull dagsins í 50 metra bringusundi og synti hún alveg við sinn besta tíma. Snorri Dagur Einarsson vann svo gull í 50 metra bringusundi og gerði sér lítið fyrir og bætti mótsmetið. Einar Margeir Ágústsson fékk silfur í sömu grein. Hólmar Grétarsson fékk svo þriðju gullverðlaun Íslands í sundinu á þessum fjórða keppnisdegi þegar hann kom fyrstur í bakkann í 400 metra fjórsundi. Síðustu gullverðlaun dagsins kom svo í boðsundi blandraðra sveita í 4x100 metra fjórsundi en sveitina skipuðu Guðmundur Leo Rafnsson, Einar Margeir Ágútsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Snæfríður Sól Jórunnardóttir. Jóhanna og Snæfríður fengu svo silfur og brons í 50 metra flugsundi. Birnir Freyr Hálfdánarson fékk silfur í 50 metra flugsundi og Ylfa Lind Kristmannsdóttir synti á sínum besta tíma þegar hún fékk silfur í 50 metra baksundi. Eva Margrét Falsdóttir fékk brons í 400 metra fjórsundi, Sólveig Freyja Hákonardóttir varð í 5. sæti í 400 metra fjórsundi og Veigar Hrafn Sigþórsson varð tíundi í 400 metra fjórsundi.

Íslenska sundfólkið fer heim með flest verðlaun af öllum þjóðum sem tóku þátt í sundkeppni Smáþjóðaleikanna, 40 verðlaun alls, 16 gull, 12 silfur og 12 brons. Frábær árangur og fer sundfólkið níu verðlaunum ríkari heim af þessum leikum en á Smáþjóðaleikunum á Möltu fyrir tveimur árum.

Strandblak
Karla- og kvennaliðin í strandblaki spiluðu fjórða daginn í röð í Andorra en bæði lið mættu öflugum andstæðingum og þurftu að lúta í lægra haldi. Þær Thelma Dögg Grétarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir, sem skipa kvennaliðið, léku gegn liði Liechtenstein en töpuðu í tveimur hrinum, 21-12 og 21-11. Benedikt Baldur Tryggvason og Hermann Hlynsson léku gegn liði frá Kýpur þar sem Kýpverjar unnu báðar hrinur, 21-16 og 21-12. Lokaleikir liðanna eru á morgun, kvennaliðið mætir Mónakó og karlaliðið Liechtenstein.

Blak
Íslenska karlalandsliðið í blaki spilaði lokaleik sinn á Smáþjóðaleikunum í dag og mætti Mónakó. Bæði lið voru búin að spila fjóra leiki, vinna einn og tapa þremur. Íslenska liðið átti nokkuð erfitt uppdráttar í dag og lauk leiknum með sigri Mónakó, 25-17, 25-18 og 25-23. Karlalið Íslands endar því í 5. sæti blakkeppninnar á Smáþjóðaleikunum.

Tennis
Ísland lauk leik í tennis í dag en þau Emilía Eyva Thygesen og Rafn Kumar Bonifacius spiluðu í undanúrslitum í tvenndarleik. Andstæðingar þeirra voru ógnarsterkt par frá Lúxemborg sem fyrr í dag voru þegar búin að tryggja sér gullverðlaun. Marie Weckerle vann gull í einliðaleik kvenna og í tvíliðaleik og Alex Knaff vann gull í tvíliðaleik. Þau tvö voru því samanlagt búin að vinna þrjú gullverðlaun í dag, áður en kom að leiknum við þau Emilíu og Rafn. Það var því vitað mál að það yrði á brattann að sækja fyrir Ísland en leiknum lauk með sigri Lúxemborgar, 6-1 og 6-0. Emilía og Rafn fá þó bronsverðlaun fyrir árangurinn, líkt og tapliðið úr hinni undanúrslitaviðureigninni, þar sem ekki er spilað um bronsið.

Þar sem margir keppendur höfðu þegar lokið leik í Andorra fyrir þennan fjórða keppnisdag var stuðningurinn í stúkunni víða góður og margir sem nýttu tækifærið til að sjá aðrar greinar og hvetja sitt fólk til dáða.

Á morgun lýkur keppni á Smáþjóðaleikunum en þá mun Ísland eiga keppendur í götuhjólreiðum, strandblaki og frjálsíþróttum.

Keppnisdagskrá og úrslit má finna hér: Schedule and results - Jocs dels Petits Estats d'Europa

Myndir með frétt