Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
31

Á vaktinni á Smáþjóðaleikunum

29.05.2025

 

Þau Örnólfur Valdimarsson læknir, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur og Jóhannes Már Marteinsson sjúkraþjálfari standa vaktina í heilbrigðisteymi ÍSÍ á Smáþjóðaleikunum.

Yfir 100 íslenskir keppendur eru á leikunum og eins og gefur að skilja þá getur ýmislegt komið upp sem þarf að hlúa að. Örnólfur, Hafrún og Jóhannes Már eru þaulreynd í verkefnum sem þessum og dýrmætt að geta leitað til þeirra ef eitthvað bjátar á. Þau, ásamt fararstjórn ÍSÍ, flokksstjórum og þjálfurum halda vel utan um þennan stóra hóp keppenda Íslands á leikunum, sem inniheldur bæði reynslubolta á Smáþjóðaleikum og nýliða sem eru á sínum fyrstu leikum. Gott samstarf er á milli heilbrigðisteymisins og flokksstjóra þeirra íþróttagreina sem keppt er í á leikunum og hafa þátttakendur nýtt sér vel þá þjónustu sem í boði er.