Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

20 verðlaun á öðrum keppnisdegi Smáþjóðaleikanna

28.05.2025

 

Keppni hélt áfram á Smáþjóðaleikunum í Andorra í dag. Íslenska íþróttafólkið sópaði að sér verðlaunum annan daginn í röð.

Sund
Íslenska sundfólkið var í miklum ham í lauginni í dag og var niðurstaðan sex gullverðlaun, eitt silfur og fjögur brons. Snæfríður Sól Jórunnardóttir vann gullverðlaun í 200 metra skriðsundi og Vala Dís Cicero fékk silfurverðlaun í sömu grein. Birgitta Ingólfsdóttir vann gull í 100 metra bringusundi, Einar Margeir Ágústsson vann gull í 100 metra bringusundi og Snorri Dagur Einarsson fékk brons í sama sundi. Eva Margrét Falsdóttir vann gull í 200 metra fjórsundi og bætti sinn besta tíma um eina sekúndu, Ylfa Lind Kristmannsdóttir fékk svo brons í sömu grein. Birnir Freyr Hálfdánarson fékk brons í 200 metra fjórsundi og Ýmir Chatenay Sölvason fékk brons í 200 metra skriðsundi. Kvennasveit Íslands í 4x100 metra fjórsundi synti líka til sigurs en sveitina skipuðu þær Ylfa Lind Kristmannsdóttir, Birgitta Ingólfsdóttir, Nadja Djurovic og Snæfríður Sól Jórunnardóttir. Karlasveitin í 4x100 metra fjórsundi gerði sér svo lítið fyrir og bætti Íslandsmet og mótsmet þegar sveitin tryggði sér gullverðlaunin í greininni, bætingin á Íslandsmetinu nam rúmum 3 sekúndum, 3:43,14. Sveitina skipuðu þeir Guðmundur Leo Rafnsson, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Hálfdánarson og Símon Elías Statkevicius. Frábær dagur hjá íslenska sundfólkinu.


Fimleikar
Íslenska fimleikafólkið átti afar góðan dag þegar keppt var í úrslitum á einstökum áhöldum. Jónas Ingi Þórisson fékk gull í gólfæfingum og brons á bogahesti, Nanna Guðmundsdóttir fékk gull í gólfæfingum, Þóranna Sveinsdóttir fékk gull á tvíslá, Rakel Sara Pétursdóttir fékk silfur á stökki, Jón Sigurður Gunnarsson fékk brons í hringum og Margrét Lea Kristinsdóttir fékk brons á jafnvægisslá. Olga Bjarnadóttir, sem er í framkvæmdastjórn ÍSÍ og í tækninefnd Smáþjóðaleikanna, afhenti fjölmörg verðlaun í dag og því sérlega íslensk stemning í fimleikasalnum.

Karate
Karatekonan Eydís Magnea Friðriksdóttir vann gull í kumite í -61 kg flokki í dag en Eydís vann þrjár af fjórum keppnum sínum í dag. Hún mætti Nada Boricic frá Svartfjallalandi í úrslitum og þegar úrslitaviðureigninni lauk voru gullverðlaunin í höfn. Eydís var ekki sú eina úr karate til að komast á verðlaunapall í dag því Þórður Jökull Henrysson fékk brons í kata. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ára sögu Smáþjóðaleikanna sem karate er ein af keppnisgreinum leikanna og árangur Íslands því sérlega eftirtektarverður.


Borðtennis
Í dag var keppt í einliðaleik í borðtennis og var Ingi Darvis Rodriguez einum leik frá því að berjast um verðlaun  en Ingi komst í 8-manna úrslit þar sem hann laut í lægra haldi gegn Felix Wetzel frá Möltu, 3-0. Magnús Gauti Úlfarsson, Aldís Rún Lárusdóttir og Nevana Tasic voru öll einum leik frá því að komast í útsláttarkeppnina en öll spila aftur á morgun þegar keppt verður í liðakeppni. 


Tennis
Í einliðaleik karla mætti Anton Jihao Magnússon Liam Delicata frá Möltu og hafði Delicata betur í tveimur settum, 2-0. Emilia Eyva Thygesen og Anna Soffia Grönholm mættu liði frá Kýpur í tvíliðaleik kvenna en leikurinn tapaðist 2-0. Þær kýpversku voru betri í fyrsta setti og unnu það örugglega, 6-1, en annað settið var mun jafnara og fór í upphækkun sem Kýpur vann, 7-5. Rafn Kumar Bonifacius mætti Marco de Rossi frá San Marínó í annarri umferð einliðaleiks karla. Leikurinn var æsispennandi, Rafn Kumar vann fyrsta settið 6-4 en de Rossi jafnaði í öðru setti, 6-3. Úrslitin réðust því í þriðja settinu og þar var það de Rossi sem hafði betur, 6-4, og vann leikinn 2-1. 

Skotíþróttir
Jórunn Harðardóttir og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir kepptu í loftskammbyssu kvenna í dag og komust báðar í úrslit. Í undanúrslitum fékk Jórunn 544 stig og hafnaði í 5. sæti í heildarkeppninni og Aðalheiður Lára fékk 525 stig og varð áttunda inn í úrslitin. Í úrslitunum höfðu þær stöllur sætaskipti því Jórunn hafnaði í 8. sæti og Aðalheiður í því 5. eftir afar spennandi hrinur.

Blak
Karlalandsliðið í blaki mætti Lúxemborg í kvöld og íslenska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti. Þeir unnu fyrstu hrinuna 25-19 en Lúxemborg, sem er með afar sterkt blaklið, vann næstu hrinu 25-15, og jafnaði leikinn í 1-1. . Lið Lúxemborgar vann svo næstu tvær hrinurnar, 25-20 og 25-23, og leiknum lauk því með 3-1 sigri Lúxemborgar.

Strandblak
Landslið kvenna í strandblaki mætti heimakonum í Andorra og úr varð hörkuleikur en þær Thelma Dögg Grétarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir höfðu betur í þremur hrinum, 2-1. Þeir Benedikt Baldur Tryggvason og Hermann Hlynsson, sem skipa karlalandsliðið, mættu ógnarsterku liði Lúxemborgar og máttu þola 2-0 tap.

Myndir með frétt