16 íslensk verðlaun á fyrsta keppnisdegi

Fyrsta keppnisdegi Smáþjóðaleikanna í Andorra lauk nú undir kvöld og það er óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera hjá íslensku keppendunum.
Frjálsíþróttir
Á frjálsíþróttavellinum tryggði Birna Kristín Kristinsdóttir sér gullið í langstökki, hún stökk lengst 6,36 metra, vann yfirburðarsigur og var einungis 10 sentímetrum frá sínum besta árangri í greininni. Ísold Sævarsdóttir fékk silfur í langstökkinu en Ísold keppti einnig í spjótkasti og í 4x400 metra boðhlaupi í kvöld. Karen Sif Ársælsdóttir fékk silfur í stangarstökki og Kolbeinn Höður Gunnarsson silfur í 100 metra hlaupi.
Sund
Í sundinu hófst dagurinn á undanrásum þar sem 13 syntu inn í úrslitin sem fram fóru síðdegis. Snæfríður Sól Jórunnardóttir varð í 2. sæti í 100 metra skriðsundi á sínum besta tíma á tímabilinu og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, sem var með fjórða besta tímann inn í úrslitin, varð í þriðja sæti og tryggði sér bronsið. Þá fékk Hólmar Grétarsson silfur í 200 metra flugsundi. Guðmundur Leo Rafnsson vann gullverðlaun í 200 metra baksundi og Bergur Fáfnir Bjarnason varð þriðji í sömu grein og fékk brons.
Þá vann Ylfa Lind Kristmannsdóttir gull í 200 metra baksundi. Kvennasveitin í 4x100 metra skriðsundi gull og karlaliðið fékk silfur í sömu grein og synti á nýju Íslandsmeti, 3:25,01. Niðurstaðan á fyrsta keppnisdegi í lauginni því þrjú gull, þrjú silfur og tvö brons.
Hjólreiðar
Keppt var í tímatöku karla og kvenna í hjólreiðum og þar bar hæst árangur Hafdísar Sigurðardóttur sem varð fyrst Íslendinga til þess að komast á verðlaunapall í tímatöku á Smáþjóðaleikum. Hafdís varð þriðja í mark og tryggði sér bronsverðlaunin með stæl. Bríet Kristý Gunnarsdóttir hafnaði í 7. sæti og Silja Jóhannesdóttir í 11. sæti. Hjá körlunum varð Davíð Jónsson 7. sæti, Ingvar Ómarsson í 10. sæti og Daníel Freyr Steinarsson hafnaði í 24. sæti.
Júdó
Aðalsteinn Björnsson tryggði sér gullverðlaun í júdó í -90 kg flokki og var sigurinn afar öruggur. Aðalsteinn vann allar fjórar glímurnar og lagði Svartfellinginn Novo Raicevic í úrslitum. Önnur verðlaun bættust svo í safnið í júdóinu í dag því Helena Bjarnadóttir fékk brons í -63 kg flokki.
Blak
Karlalið Íslands í blaki spilaði tvo leiki í dag. Fyrri leikurinn var gegn San Marínó og tapaðist 3-1 en seinni leikurinn var gegn heimamönnum í Andorra og þar tryggði Ísland sér 3-0 sigur.
Fimleikar
Keppt var í liðakeppni og fjölþraut í karla- og kvennaflokki í dag. Kvennaliðið stóð sig afar vel og náði í silfur í liðakeppni kvenna og karlaliðið hafnaði í 4. sæti eftir að hafa lengi vel verið í úrslitabaráttu. Ísland á keppendur í öllum áhöldum á morgun. Nánar má lesa um þennan fyrsta keppnisdag á heimasíðu Fimleikasambandsins.
Borðtennis
Karla- og kvennaliðin í tvíliðaleik spiluðu bæði í dag, karlaliðið lék þrjá leiki og konurnar tvo. Þeir Ingi Darvis Rodriguez og Magnús Gauti Úlfarsson töpuðu tveimur leikjum, gegn Lúxemborg og San Marínó, en unnu sinn leik gegn Svartfjallalandi, 3-0. Aldís Rún Lárusdóttir og Nevana Tasic töpuðu báðum sínum leikjum, gegn Kýpur og Möltu.
Tennis
Tveir sigrar og tvö töp var niðurstaðan hjá Íslandi í tennis. Í einliðaleik kvenna vann Emilia Eyva Thygesen sinn leik gegn heimakonunni Laura Pichel Costa, 2-0, og er komin í 8-kvenna úrslitin en Anna Soffia Grönholm laut í lægra haldi gegn Elaine Genovese frá Möltu, 2-0. Í tvenndarleik unnu þau Emilia Eyva og Rafn Kumar Bonifacius sinn leik, 2-0, og eru komin í 8-liða úrslit en í tvíliðaleik karla töpuðu þeir Rafn Kumar og Anton Jihao Magnússon fyrir liði San Marínó, 2-0.
Skotíþróttir
Í dag var keppt með loftriffli og þar komst Íris Eva Einarsdóttir í úrslit og endaði þar í 8. sæti. Reynsluboltinn Jórunn Harðardóttir missti naumlega af úrslitunum en hún hafnaði í 9. sæti.
Strandblak
Karla- og kvennalið Íslands í strandblaki kepptu bæði í dag. Kvennaliðið, sem er skipað Thelmu Dögg Grétarsdóttur og Jónu Margréti Arnarsdóttur, vann sinn leik gegn Kýpur 2-0 og mæta þær Andorra á morgun. Karlaliðið, skipað þeim Benedikt Baldri Tryggvasyni og Hermanni Hlynssyni, tapaði gegn heimamönnum í Andorra, 2-1. Þeir mæta Lúxemborg á morgun.
Karate
Una Borg Garðarsdóttir var sú eina af íslensku keppendunum sem keppti í dag. Hún keppir í kata og mætti heimakonunni Mariu Ubiergo en mátti þola naumt tap. Þórður Jökull Henrysson keppir í kata á morgun og Eydís Magnea Friðriksdóttir keppir í kumite -61 kg flokki á fimmtudag.