Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

Erna Sóley og Hafsteinn fánaberar á Smáþjóðaleikunum

26.05.2025

 

Setningarhátíð Smáþjóðaleikanna verður á Estadi Nacional, þjóðarleikvangi Andorra, kl. 19:30 að íslenskum tíma í kvöld eða kl. 21:30 að staðartíma. Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarpari, og Hafsteinn Valdimarsson, fyrirliði karlalandsliðsins í blaki, verða fánaberar á setningarhátíðinni.

Erna Sóley er að keppa á sínum fyrstu Smáþjóðaleikum en hún er sannarlega þrautreynd á sínu sviði. Hún var á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í París í fyrra, þar sem hún náði sínum bestu köstum á stórmóti. Erna Sóley bætti jafnramt Íslandsmetið í kúluvarpi utanhúss þegar hún varpaði kúlunni 17,91 metra á Meistaramóti Íslands í júní í fyrra.

Hafsteinn er fyrirliði karlalandsliðsins í blaki og fyrirliði Hamars í Hveragerði. Þetta eru 7. Smáþjóðaleikar Hafsteins sem nú er á sínu 17. ári í landsliðinu í blaki. Hafsteinn hefur unnið til fjölmargra Íslands-, bikar- og deildarmeistaratitla með Hamri en hann á einnig að baki langan atvinnumannaferil þar sem hann lék í Danmörku, Austurríki og Frakklandi.