Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

Aðalfundur Smáþjóðaleikanna

26.05.2025

 

Aðalfundur Smáþjóðaleikanna fór fram í Andorra í morgun, en fundinn sitja fulltrúar þeirra níu þjóða sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum.

Meðal þess sem var á dagskrá aðalfundarins var kynning á leikunum sem fara fram í Mónakó 2027. Þar voru kynntar keppnisgreinar leikanna sem verða fleiri en oft áður, en um er að ræða frjálsíþróttir (þó ekki kringlukast og sleggjukast), sund, júdó, skotíþróttir (loftbyssa og loftriffill), tennis og borðtennis, en þessar greinar eru skyldugreinar á öllum Smáþjóðaleikunum. Þá verður keppt í blaki og strandblaki, rúgbý-7, sundknattleik, körfuknatteik 3x3, bogfimi, fimleikum, siglingum (ILCA 7 og ILCA 6) og boule (petanque o.fl).

Ljóst er að leikarnir 2027 verða fyrr en áður eða dagana 3. til 8. maí, en gestgjafar urðu að færa þá til vegna annarra viðburða í Mónakó auk þess sem að ekki er hægt að seinka þeim þar sem Evrópuleikar verða í Istanbúl í júní.

Á fundinum voru einnig kynntir leikarnir í Lúxemborg 2029 og þær íþróttagreinar sem verða á dagskrá, en ekki er búið að festa nákvæmlega hvaða keppnisgreinar verða á leikunum. Íþróttagreinarnar eru eins og alltaf frjálsíþróttir, sund, júdó, skotíþróttir, tennis og borðtennis en auk þeirra er verið að stefna á blak og strandblak, körfuknattleik og 3x3, badminton, hjólreiðar, fimleika og karate. Tímasetning leikanna er ekki staðfest en miðað er við hefðbundnar dagsetningar sem eru í kringum mánaðarmótin maí/júní 2029.

Ólympíunefnd Kýpur staðfesti formlega umsókn sína um að halda leikana 2031 og þá urðu breytingar á stjórn Smáþjóðaleikanna, en Yvette Lambin-Berti frá Mónakó mun taka við sem forseti Smáþjóðaleikanna næstu tvö árin, en lögum samkvæmt er það embætti í höndum þeirrar Ólympíunefndar sem er næsti gestgjafi leikanna.

Michelle Tousch frá Lúxemborg tekur við því hlutverki að gegna stöðu framkvæmdastjóra leikanna, en samkvæmt lögum kemur sé aðili frá þeirri Ólympíunefnd sem heldur leikana eftir fjögur ár.

Breytingar voru gerðar á tækninefnd Smáþjóðaleikanna, en Jean-Pierre Schobel frá Mónakó, sem gegnt hefur embætti formanns tækninefndar síðustu 15 árin gaf ekki kost á sér til endurkjörs og Manfred Schreiber frá Liechtenstein var kosinn í hans stað.

Aðalfundinn sóttu fyrir Íslands hönd þau Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Olga Bjarnadóttir frá framkvæmdastjórn ÍSÍ sem situr einnig í tækninefnd leikanna, Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir, ráðgjafi ÍSÍ sem situr einnig í framkvæmdastjórn Evrópsku Ólympíunefndanna.

Að fund loknum afhenti forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, forseta Ólympíunefndar Andorra, Xavier Espot Miró, gjöf í tilefni leikanna.

Myndir með frétt