Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
2

Vanda og Jón Karl í stjórn ÍBR

11.04.2025

 

52. ársþing Íþróttabandalags Reykjavíkur, fór fram í Laugardalshöllinni í gærkvöld. Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og voru viðstaddir þingið og var það vel sótt en 55 fulltrúar frá 19 íþróttafélögum innan ÍBR tóku þátt í að móta stefnu komandi ára. 

Ingvar Sverrisson var endurkjörinn sem formaður ÍBR. Breytingar voru á stjórn ÍBR því þeir Benedikt Ófeigsson og Brynjar Jóhannesson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Vanda Sigurgeirsdóttir og Jón Karl Ólafsson voru kjörin ný í stjórn ÍBR. Nánari upplýsingar af þinginu má finna hér.

Ljósmyndirnar tók Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi UMFÍ.

Ársskýrsla ÍBR 

Myndir með frétt