Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
27.04.2025 - 27.04.2025

Ársþing HHF 2025

Ársþing Héraðssambands Hrafna-Flóka (HHF)...
24

Íslands- og unglingameistaramótið í sundi um helgina

11.04.2025

 

Íslands- og unglingameistaramótið í sundi hefst í Laugardalslaug á morgun, en mótið er samvinnuverkefni SSÍ og Íþróttasambands Fatlaðra (ÍF).

Allt fremsta sundfólk landsins er skráð til keppni, þar á meðal Snæfríður Sól Jórunnardóttir ein besta skriðsundskona í Evrópu. Snæfríður hefur náð lágmörkum á heimsmeistaramótið í 50 metra laug sem haldið verður í Singapore í sumar. Einar Margeir Ágústsson hefur einnig tryggt sér þátttökurétt á HM50 í sumar en hann mun keppa í 50, 100 og 200 metra bringusundi um helgina. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Símon Elías Stakevicius, sem tóku þátt í Bergen Festival í Noregi um síðustu helgi, verða einnig í sviðsljósinu, en þau eru bæði mjög nálægt HM50 lágmörkum.

Af öðrum keppendum sem verða í Laugardalslaug má nefna þá Snorra Dag Einarsson, Birni Frey Hálfdánarson og Guðmund Leó Rafnsson. Þeir þrír hafa nú þegar náð lágmörkum á Evrópumeistaramótið fyrir tuttugu og þriggja ára og yngri sem fram fer í Slóvakíu í sumar. Þá verða þau Vala Dís Cicero og Hólmar Grétarsson, sem hafa náð inn á Evrópumeistaramót unglinga í sumar, jafnframt í eldlínunni um helgina.

Þetta er síðasta tækifærið sem sundfólkið fær til að ná lágmörkum inn á alþjóðleg mót sumarsins, eins og heimsmeistaramótið í 50 metra laug, Evrópumeistaramót unglinga, Norðurlandameistaramót æskunnar og einnig á Smáþjóðaleikana sem fram fara í Andorra í lok maí.

Þá er Íslands- og unglingameistaramótið kjörið tækifæri fyrir sundfólk til að synda sig inn í landsliðshópa SSÍ þar sem afreksstarfið og hæfileikamótun til framtíðar fer fram.

Mótið hefst með undanrásum í fyrramálið kl 09:00 og úrslit hefjast kl 16:30. Úrslitin verða í beinni útsendingu á RÚV 2 laugardag og sunnudag kl 16:30. Einnig verður hægt að horfa á streymi hér: https://www.sund.live/

Myndir með frétt