Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutar í fyrsta skipti

20.03.2025

  

Þrjátíu verkefni um allt land hljóta styrki upp á samtals 20,3 milljónir króna úr Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar. Þetta var í fyrsta skiptið sem veitt er úr sjóðnum, sem styrkir verkefni sem stuðla eiga að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna á Íslandi. Næsti umsóknarfrestur verður nú í vor en alls eru 70 m.kr. sjóðnum til úthlutunar árlega.

Áherslur sjóðsins eru á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölþættan menningar- og tungumálabakgrunn. 

Samtals bárust 49 umsóknir í sjóðinn upp á 86 milljónir króna. Verkefnin sem styrkt voru skiptast í fjóra áhersluflokka: 

  • A: Verkefni tengd börnum af erlendum uppruna: 8 umsóknir, styrktar upp á 6,1 milljón króna.
  • B: Verkefni tengd börnum með fötlun: 11 umsóknir, styrktar upp á 7,8 milljónir króna. 
  • C: Verkefni tengd börnum af tekjulægri heimilum: 6 umsóknir, styrktar upp á 3,7 milljónir króna.
  • D: Verkefni þvert á ofangreinda flokka: 5 umsóknir, styrktar upp á 2,7 milljónir króna. 

Skipting styrkja eftir landshlutum:

  • Austurland: 1.500.000,- kr.
  • Höfuðborgarsvæðið: 4.050.000,- kr.
  • Norðurland vestra: 900.000,- kr.
  • Norðurland eystra: 2.700.000,- kr.
  • Suðurland: 2.250.000, kr.
  • Suðurnes: 3.500.000, kr.
  • Vesturland: 4.250.000, kr.
  • Vestfirðir: 1.150.000, kr.

Nánar um Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar:

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og  Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn.

Í Hvatasjóðinn geta sótt íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ, íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ, sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga.

Upplýsingasíða Hvatasjóðs íþróttahreyfingarinnar.