Heiðrun á ársþingi KSÍ

Ársþing KSÍ fór fram 22. febrúar síðastliðinn á Hótel Hilton Nordica. Þingið var fjölsótt og gekk vel. Skipan stjórnar, varastjórnar og landshlutastjórnar má sjá í frétt á heimasíður KSÍ.
Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði við setningu þingsins og afhentu þeir Andri og Hafsteinn Pálsson formaður Heiðursráðs ÍSÍ einnig tvær heiðursviðurkenningar fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ í upphafi þings.
Helgi R. Magnússon var sæmdur Gullmerki ÍSÍ en Helgi hefur átt sæti í Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ allt frá árinu 1991 eða í 34 ár samfellt.
Unnar Stefán Siguðsson fráfarandi stjórnarmaður KSÍ var sæmdur Silfurmerki ÍSÍ. Unnar Stefán sat í stjórn KSÍ í fjögur ár og sinnti formennsku í ýmsum nefndum á vegum sambandsins. og
Meðfylgjandi mynd er af heiðurshöfunum með framkvæmdastjóra ÍSÍ og formanni Heiðursráðs ÍSÍ og eins fylgir hér mynd af nýskipaðri stjórn KSÍ.
Myndir: Mummi Lú.