Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21

Skráning í Lífshlaupið er hafin

17.01.2025

 

Skráning er hafin í Lífshlaupið 2025 - landskeppni í hreyfingu sem ræst verður í átjánda sinn miðvikudaginn 5. febrúar nk.
Vinnustaðakeppnin stendur frá 5. til 25. febrúar en grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 5. til 18. febrúar.

ÍSÍ hvetur til skráningu í Lífshlaupið 2025 og hvetur vinnustaði og skóla til þess að virkja sem flesta til þátttöku. Að sjálfsögðu er hægt að notast áfram við sitt notendanafn frá fyrri keppnum og um að gera að hafa samband ef einhver vandræði koma upp varðandi það.

Við vekjum athygli á því að ekki þarf að skrá inn vinnustaði sem hafa áður verið með, nöfn fyrirtækja má finna í flettilistanum í skráningarferlinu, í skrefinu „Ganga í lið" eða „Stofna lið". Endilega athugið hvort ykkar vinnustaður sé skráður áður en þið hefjið nýskráningu. Hins vegar þarf að stofna ný keppnislið undir vinnustaðnum og ahuga hvort að starfsmannafjöldi sé réttur. Ef breyta þarf starfsmannafjölda látið vita á netfangið lifshlaupid@isi.is og við kippum því í liðinn. Liðsstjóri þarf að samþykkja þá aðila sem vilja ganga í þeirra lið.

Sama á við um grunn- og framhaldsskólana. Allir skólar landsins ættu að vera í flettilistanum en þó þarf að stofna bekkina inn aftur. Það má gera á auðveldan hátt með excel innlestri.

Allar upplýsingar má nálgast hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í síma 514-4000 eða með fyrirspurn á netfangið lifshlaupid@isi.is

Við bendum einnig á Facebook síðu og Instagram síðu Lífshlaupsins.