Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

Málþingið Hreyfing 60+ haldið í dag

19.11.2024

 

ÍSÍ minnir á málþing um hreyfingu 60 ára og eldri sem verður haldið í dag. Málþingið er ætlað fagaðilum á landinu er koma að stjórnun, þjálfun og heilsueflingu eldra fólks. Yfirskriftin er Hreyfing 60+.

Málþingið fer fram í sal Menntaskóla Borgarfjarðar, Hjálmakletti, við Borgarbraut 54 í Borgarnesi og stendur yfir frá kl.12.00 til 16.00. Húsið opnar kl.11.30.
Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Fundarstjórar eru Ásgerður Guðmundsdóttir (LEB) og Margrét Regína Grétarsdóttir (ÍSÍ), verkefnastjórar Bjarts lífsstíls.

Hér má finna dagskrá málþingsins:

11:30 Salur opnar og léttar veitingar
12:00 Málþing sett af fundarstjórum
12:05 Hildur Guðný Ásgeirsdóttir: Heilsueflandi efri ár
12:30 Sigríður Arndís Jóhannsdóttir: Okkar heilsueflandi samfélag, Vesturbær, Hlíðar og Miðborg
12:50 Emilía Halldórsdóttir: Sprækir Skagamenn
13:10 Arna Steinarsdóttir: Þjónusta sjúkraþjálfara í heilsugæslu
13:35 Svavar Knútur: Það er Pláss - Vitundarvakning um félagslega einangrun

14:00 Heilsuhlé

14:10 Kynning á vinnustofu
14:15 Vinnustofa hefst
14:35 Vinnustofu lýkur
14:40 Samantekt úr vinnustofum
14:50 Svavar Knútur slær á létta strengi
15:00 - 16:00 Umræður og kaffiveitingar

Hér er hlekkur á streymi fyrir þá sem ekki eiga möguleika á að mæta á málþingið.

ÍSÍ hvetur alla, er málið varðar, til að mæta á málþingið eða fylgjast með í streymi!