Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
27

Erla Gunnlaugsdóttir í starf svæðisfulltrúa Austurlands

13.09.2024

 

Erla Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin í starf svæðisfulltrúa á svæðisstöð íþróttahreyfingarinnar á Austurlandi og myndar teymi með Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur, sem ráðin var fyrr í sumar. Erla býr á Egilsstöðum með fjölskyldu sinni og er fædd árið 1995. Síðastliðin þrjú ár hefur hún starfað sem kennari við grunnskólann á Egilsstöðum en bakgrunnur hennar er í frjálsíþróttum og starfi íþróttafélaga. Lokaverkefni Erlu til B.Ed. – gráðu í kennaranámi hennar fjallaði um forvarnarstarf UMFÍ og í M.ed.- námi hennar skrifaði hún um stuðning grunnskóla á Austurlandi við nemendur sem stunda íþróttir. Erla var jafnframt sumarstarfsmaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurland (UÍA) árið 2017 og var stór hluti af starfi hennar það sumarið að undirbúa Unglingalandsmót UMFÍ, sem fram fór á Egilsstöðum þá um sumarið. 

„Ég er mjög spennt og stolt af því að vera hluti af flottu teymi“ sagði Erla Gunnlaugsdóttir í tilefni ráðningar hennar.

Svæðisfulltrúar svæðisstöðva íþróttahéraðanna eru nú orðnir fimmtán talsins á átta starfssvæðum um allt land. Aðeins á eftir að ráða annan af tveimur starfsmönnum á Norðurlandi vestra. Störfin sextán voru auglýst í sumar og bárust 200 umsóknir um þau.

Hlutverk svæðisstöðvanna er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni, styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar. 

Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. 

Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

Á minni myndinni má sjá hina fjórtán starfsmenn svæðistöðvanna í síðustu viku.

Mynd/UMFÍ

Myndir með frétt