Vorfjarnámi ÍSÍ lokið
Vorfjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs er nú lokið. Fjarnám ÍSÍ er almennur hluti þjálfaramenntunarinnar og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Samtals luku 55 þjálfarar námi að þessu sinni, 41 á 1. stigi og 14 á 2. stigi. Þjálfararnir dreifast á flest íþróttahéruð landsins og alls koma þeir frá 20 mismunandi íþróttagreinum. Nokkuð mikil dreifing var á þjálfurunum m.t.t. íþróttagreina en að þessu sinni komu flestir þjálfararnir frá körfuknattleik eða 9 talsins og 6 þjálfarar komu frá skíðaíþróttum, blaki og akstursíþróttum.
Sumarfjarnám ÍSÍ á 1. og 2. stigi hefst mánudaginn 10. júní nk. og er skráning komin í fullan gang hér: http://www.abler.io/shop/isi
Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði í síma 514-4000 og 863-1399.