Vertu með í Hjólað í vinnuna
Skráning er hafin í heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna en það hefst miðvikudaginn 8. maí nk. Einfalt er að skrá sig til leiks og vera með inn á heimasíðu Hjólað í vinnuna, en það er gert með því að smella á innskráning og annað hvort stofna lið eða ganga í lið. Hér eru nánari leiðbeiningar um skráningu.
ÍSÍ hvetur alla, sem geta, til að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra, til dæmis samstarfsfélaga, fjölskyldumeðlimi eða vini, til að vera einnig með.
Þeir sem vinna heima geta líka verið með. Viðkomandi byrjar þá vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða hlaupa þá vegalengd sem samsvarar vegalengdinni til og frá vinnu, bæði í upphafi vinnudags og svo aftur í lok vinnudags.
Allir sem skrá sig til leiks í Hjólað í vinnuna eiga möguleika á að vera dregnir út í skráningarleik.
Dregið er úr skráðum einstaklingum alla virka daga í þættinum Morgunverkin á Rás 2, í boði Reiðhjólaverslunarinnar Arnarins í Skeifunni. Heppinn þátttakandi verður dreginn út í lok verkefnisins og mun vinna glæsilegt reiðhjól.
Einnig verður í gangi myndaleikur og heppnir þátttakendur geta verið dregnir út og fengið vörur frá Reiðhjólaversluninni Erninum. Hægt er að senda inn myndir með #hjoladivinnuna á Instagram, á Facebook-síðu Hjólað í vinnuna og undir myndir og myndbönd á heimasíðu Hjólað í vinnuna.
Hjólað í vinnuna lýkur þriðjudaginn 28. maí.