Hanna Rún og Nikita í 6. sæti
25.03.2024
Heimsmeistaramótið í latín dönsum atvinnumanna var haldið í Búdapest í Ungverjalandi um helgina og tóku þau Hanna Rún Óladóttir Bazev og Nikita Bazev þar þátt. Um 40 bestu pörin í atvinnumönnum WDSF hófu leik í gær og komust þau Hanna Rún og Nikita í úrslitin þar sem þau nældu sér í sjötta sætið. Frábær árangur hjá íslensku dansíþróttapari.
ÍSÍ óskar Hönnu Rún og Nikita til hamingju með árangurinn!