Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
28

Af hverju er mikilvægt að konur séu í forystu í íþróttum?

01.03.2024

 

Í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars næstkomandi standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir ráðstefnunni Konur og íþróttir, forysta og framtíð.

Á ráðstefnunni eru konur í fyrsta sæti. Konur í stjórnum félaga, konur í dómgæslu og konur í þjálfun. Rætt verður um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Rætt verður um mikilvægi þess að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni.  Á það við um þátttöku í stjórnum íþróttafélaga, í ráðum og nefndum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.

Ráðstefnan fer fram á Fosshóteli, Þórunnartúni 1 á milli klukkan 09:00 – 12:30.  Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá á viðburðinn hér og er skráningin opin til 6. mars.  Fyrir þau sem ekki komast, verður streymt frá ráðstefnunni.  Ragnheiður Ríkharðsdóttir, sem á sæti í framkvæmdarstjórn ÍSÍ, mun stýra ráðstefnunni.

Dagskrá
Setning ráðstefnunnar
Olga Bjarnadóttir, annar varaforseti ÍSÍ

Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson, félagsfræðingur

Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ

Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

Pallborðsumræður
Ragnhildur Skúladóttir stýrir pallborði;
Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri FSÍ
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastóri KKÍ
Guðmunda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍA
Klara Bjartmarz, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambandsins

Að fóta sig í karllægum heimi
Bríet Bragadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari

Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum

Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á ÓL í París í áhaldafimleikum

Hvernig breytum við leiknum?
Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn

Hvenær borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir, handboltaþjálfari

Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson, frjálsíþróttaþjálfari

Konur í þjálfun og þjálfun á konum í knattspyrnu
Lára Hafliðadóttir, situr í stjórn HKK

Hvað gerum við nú? – stutt rafræn samantekt

Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ

Boðið verður upp á morgunhressingu og er viðburðurinn opinn öllum. 

Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook: Konur & íþróttir - forysta og framtíð.

ÍSÍ og UMFÍ hvetja öll kyn til að mæta og láta sig varða um málefnið!

 

Myndir með frétt