Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
28

37. Karateþing haldið

21.02.2024
37. ársþing Karatesambands Íslands (KAÍ) fór fram sunnudaginn 18. febrúar í fundarsal B og C á 3ju hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.  23 þingfulltrúar frá sjö karatefélögum og -deildum tóku þátt í þingstörfum auk stjórnar sambandsins.  Þingforseti var kosinn Valdimar Leó Friðriksson, meðstjórnandi í framkvæmdarstjórnar ÍSÍ og þingritari Hafþór Sæmundsson, stjórnarmaður KAÍ. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, var gestur á þinginu og bar kveðju frá framkvæmdastjórninni. Ræddi hann um nýjar svæðisskrifstofum ÍSÍ og hlutverk þeirra í að efla starf héraðssambanda og félaga úti á landinu. Úthlutun úr Afrekssjóð og deilingu takmarkaðs fjármagns milli íþróttagreina.  Þá var María Jensen sæmd silfurmerki KAÍ fyrir störf í þágu íþróttarinnar en hún hefur til að mynda verið gjaldkeri stjórnar í nærri tíu ár auk þessa að vera formaður mótanefndar KAÍ síðan 2015.  

Skýrsla stjórnar fyrir árið 2023 og reikningar sambandsins fyrir 2023 voru samþykktir samhljóma.  Afreksstefna fyrir árin 2024-2027 var samþykkt einróma og fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 með lítillegum breytingum frá fjárlaganefnd.
Lögð var fram tillaga um að öll karatefélög og -deildir yrðu að skrá starfsmann í mótanefnd til að öðlast keppnisrétt á mótum sambandsins. Tillagan var samþykkt eftir nokkrar umræður um hana. Stjórnin mun uppfæra reglur um Íslandsmót í samræmi við hana.  Nokkur umræða varð undir liðnum önnur mál um þátttöku útlendinga á Íslandsmeistaramótum, þ.e. flóttamanna og hælisleitenda. Einnig rætt um hlut kvenna í landsliðum sambandsins. Þá var hvatt til þess að para-karate yrði gert sýnilegt, til að efla þátttöku fatlaðra í íþróttinni.

Reinharð Reinharðsson, formaður KAÍ, gaf kost á sér til áframhaldandi formennsku og var sjálfkjörinn.
Allir aðrir meðlimir stjórnar og varastjórnar gáfu kost á sér til áframhaldandi setu og voru því sjálfkjörnir.

Myndin sem fylgir er af Reinharð Reinharðssyni, formanni KAÍ, og Maríu Jensen, fyrrum gjaldkera stjórnar og núverandi formanns mótanefndar.