Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26

Skráning er hafin í Lífshlaupið 2024

17.01.2024

 

Skráning í Lífshlaupið 2024 - landskeppni í hreyfingu, er hafin og verður hún ræst í sautjánda sinn miðvikudaginn 7. febrúar nk.
Vinnustaðakeppnin stendur frá 7. - 27. febrúar en grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 7. - 20. febrúar.

Það er því um að gera að skrá sig og huga að því hvað vinnustaðurinn eða skólinn getur gert til þess að virkja sem flesta til þátttöku. Að sjálfsögðu er hægt að notast áfram við sitt notendanafn frá fyrri keppnum og um að gera að hafa samband ef einhver vandræði koma upp varðandi það.

Við vekjum athygli á því að ekki þarf að skrá inn vinnustaði sem hafa áður verið með, nöfn fyrirtækja má finna í flettilistanum í skrefinu "Ganga í lið" eða "Stofna lið". Endilega athugið hvort ykkar vinnustaður sé ekki örugglega skráður áður en þið stofnið vinnustaðinn aftur. Hins vegar þarf að stofna ný keppnislið undir vinnustaðnum og ahuga hvort að starfsmannafjöldi sé réttur. Ef breyta þarf starfsmannafjölda látið vita á netfangið lifshlaupid@isi.is og við kippum því í liðinn. Liðsstjóri þarf núna að samþykkja þá aðila sem vilja ganga í þeirra lið.

Sama á við um grunn- og framhaldsskólana. Allir skólar landsins ættu að vera í flettilistanum en þó þarf að stofna bekkina inn aftur. Það má gera á auðveldan hátt með excel innlestri.

Allar upplýsingar má nálgast hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í síma 514-4000 eða með fyrirspurn á netfangið lifshlaupid@isi.is.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu og Instagram-síðu Lífshlaupsins