Tölfræði úr fjarnámi ÍSÍ í þjálfaramenntun
ÍSÍ býður upp á fjarnám þrisvar á ári í almennum hluta þjálfaramenntunarinnar. Um er að ræða þann hluta náms íþróttaþjálfara sem allir verða að sækja burt séð frá íþróttagrein. Námið er í boði á vorönn, sumarönn og haustönn en ekki eru þó öll stigin í boði allar annirnar. Sérgreinaþátt námsins sækja þjálfarar svo hjá sérsamböndum ÍSÍ.
Þátttaka í þessum almenna hluta námsins á árinu 2023 var góð og alls luku 148 þjálfarar námi á einhverju stigi þess. Um 57% nemenda voru konur og 43% karlar. Þjálfararnir komu frá alls 33 mismunandi íþróttagreinum, sem er mikil dreifing á milli greina. Sundíþróttin átti flesta þjálfara í náminu þetta árið og listskautarnir komu þar fast á eftir ásamt körfuknattleik og frjálsum íþróttum.
Næsta þjálfaramenntun mun hefjast 5. febrúar nk.
Allar frekari upplýsingar um námið veitir Viðar Sigurjónsson á vidar@isi.is eða í síma 514-4000/863-1399.